Súrt úr 'Óflokkað' flokknum
Smá munur
Sunnudagur, 28. september 2008Fínt að blogga
Föstudagur, 26. september 2008á mánaðarfresti
Í gærkvöldi skelltum við skötuhjúin okkur á smá deit. Skutluðum Sævari til mömmu og pabba og fórum svo í bíó. Myndin Journey to the center of the earth varð fyrir valinu og var þetta bara mjög fín mynd. Pínu fyndið samt að fara í svona þrívíddarbíó - gleraugun gera það að verkum að manni finnst stundum að myndin sé aðeins of nálægt.
Eftir um það bil tvo mánuði ætlum við mamma svo að leggja land undir fót og skreppa í helgarferð til Glasgow. Einstaklega heppilegt að fara í verslunarferð þegar krónan er í sögulegu lágmarki… Við krossum bara putta og vonum að staðan eigi eftir að breytast á næstu tveimur mánuðum eða svo. Þeir feðgar ætla að vera tveir saman hér heima og hef ég nú ekki miklar áhyggjur af þeim. Hugsa að Sævar verði bara dauðfeginn að losna við mig í smástund - allavega ef marka má gleðina sem brýst fram þegar hann sér pabba sinn koma heim að loknum vinnudegi
Annars er allt gott að frétta héðan úr Grafarvoginum - snúðurinn okkar heldur áfram að stækka og þroskast og er endalaus gleðigjafi.
Við biðjum að heilsa í bili
Time flies
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008Sumarið er barasta að verða búið. Tíminn hefur svo sannarlega flogið áfram síðustu fjóra mánuði.
Annars er búið að vera nóg að gera hjá okkur uppá síðkastið, en það sem stendur algjörlega uppúr er yyyndislegt brúðkaup sem við fórum í 9. ágúst sl. Fjúff ég gæti sko verið í brúðkaupum á hverjum degi, sérstaklega þegar þau heppnast svona vel eins og þetta. Að sjálfsögðu þurfti ég að hafa puttana aaaðeins í þessu og sletti í 10 franskar súkkulaðikökur sem voru brúðarterturnar. Komu bara ágætlega út og brögðuðust að sjálfsögðu stórvel.
Annars erum við bara í því að hafa það kósý - veturinn framundan og fátt sem mun breytast á þessu heimili við það. Ég fer ekki að vinna fyrr en í febrúar svo ég hef nægan tíma með Sævari Þór áður. Verð samt farin að vinna áður en ég veit af…
Snúðurinn okkar er að flýta sér að stækka, veltir sér yfir á magann og mjakar sér svo einhvern veginn áfram, afturábak og til hliðanna og nær í það sem hann vill. Eitthvað hefur hann þó verið pirraður uppá síðkastið og er örugglega að taka tennur. Allavega ef marka má nýjasta svipinn hjá honum, hann er settur upp þegar Sævar bítur gómunum saman til að nudda þá. Við sjáum mynd ![]()
…
Miðvikudagur, 30. júlí 2008Það er heitt - það er alltof alltof heitt. Allavega á ég einn stubb sem höndlar lífið ekkert alltof vel í þessum hita. Viftan okkar er á yfirsnúningi og kalda vatnið drukkið í lítratali.
Annars hefur ýmislegt gerst síðan síðast. Gæsaði t.d. hana Salome frænku og VÁ hvað það var gaman
Svo skellti ég mér á kaffihús með Svönu og Heiðdísi, fór á málverkasýningu í Hveragerði og ýmislegt annað.
Framundan er risaferðahelgi. Við litla fjölskyldan ætlum nú bara að halda okkur heima og skreppa í eitt grillpartý á laugardagskvöldið. Helgina eftir verslunarmannahelgina er svo brúðkaupið hjá Salome og Valtý og ég hlakka alveg óóóendanlega til ![]()
Læt þetta gott heita í bili - er lélegur bloggari þessa dagana, spurning um að leggja síðuna bara í salt!
Bíó
Miðvikudagur, 9. júlí 2008Að fara í bíó er góð skemmtun… Yfirleitt fer ég mjööög sjaldan í bíó en á síðustu viku hef ég farið tvisvar sinnum.
Fór í bæði skiptin með mömmu og í fyrra skiptið sáum við Sex and the city. Ég hafði nákvæmlega enga trú á þessari mynd, fannst ótrúlegt að hægt væri að gera þolanlega bíómynd eftir sjónvarpsþáttum. En ómæ, myndin var æææææðisleg. Alveg hægt að skellihlæja að henni og hágráta líka
Ég var ótrúlega róleg að fara svona lengi frá gullmolanum mínum, enda er hann orðinn svo stór og duglegur að hann er ekki eins háður mömmu sinni og hann var ![]()
Í gærkvöldi fórum við mamma svo í bíó í boði Bylgjunnar á forsýningu á Mamma Mia! Vááá hún var líka æðisleg. Mann langaði bara að standa upp og dansa og syngja með allan tímann
Vel hægt að mæla með báðum myndunum.
Á morgun verður litli strumpurinn okkar þriggja mánaða. Tíminn líður brjálæðislega hratt, ég verð farin að baka bangsaköku fyrir eins árs afmælið áður en ég veit af!
Vá!
Laugardagur, 5. júlí 2008:)
Föstudagur, 27. júní 2008Litli rokkarinn - pabbinn strax farinn að venja hann við

Það er síðan þessum að mæta ef það gleymist að skilja eftir kveðju í kommentakerfinu

Annars eru engar fréttir góðar fréttir er það ekki? Fínasta helgi framundan með afmælisboðum og góðu veðri. Við mæðginin erum alltaf að njóta sólarinnar og góða veðursins sem virðist engan enda ætla að taka, kvörtum ekki yfir því
Góða helgi
Long time…
Fimmtudagur, 19. júní 2008Síðan síðast hefur svo sem ýmislegt drifið á daga fjölskyldunnar. Finnur stakk t.d. af til Bretlands og var þar á námskeiði í 10 daga. Við mæðginin vorum því bara tvö hérna heima á meðan og söknuðum hans hrikalega. Mamma bjargaði okkur þó helling með því að bjóða okkur í sumarfrí til Akureyrar. Þar gerðum við ekkert annað en að heimsækja ættingja og hafa það gott.
Hið ótrúlega gerðist svo síðastliðinn mánudag. Sævar Þór ákvað að það væri heppilegur dagur til að byrja að taka snuð. Það hefur verið endalaus barningur síðan hann fæddist til að fá hann til að taka þessa græju, en hann hefur bara viljað gera þetta á sínum hraða!
Ég er hálfófær um að tala um nokkuð annað en barnið mitt - ég geri jú ekkert annað en að hugsa um hann allan sólarhringinn…
Annars voru sumir svona hressir við að sjá að pabbi var kominn heim
Sumar :)
Fimmtudagur, 29. maí 2008Já það er greinilega komið sumar á klakanum. Við mæðginin skelltum okkur í tveggja tíma göngutúr í dag í sólinni. Ég uppskar fínan sólbruna hér og þar og sit því hér rauðflekkótt og agalega smart ![]()
Svo sat ég hér í rólegheitum að gefa Sævari þegar skjálftinn mikli reið yfir. Ég hélt að glerhurðirnar ætluðu úr skápnum hjá okkur, slík voru lætin. Ég fann svo tvo eða þrjá eftirskjálfta seinna. Mér stóð nú hreint ekki á sama í þessum látum, var eiginlega bara skíthrædd… Sonurinn lét þetta að sjálfsögðu ekki fá og var hálf fúll yfir því að vera truflaður af múttunni í matartímanum ![]()
Í dag myndu svo vera sjö vikur síðan sonurinn kom í heiminn - sjii hvað tíminn líður hratt. Hann verður farinn að labba áður en ég veit af!
Hver er svo með í göngutúr í næstu viku?





