Fínt að blogga
á mánaðarfresti
Í gærkvöldi skelltum við skötuhjúin okkur á smá deit. Skutluðum Sævari til mömmu og pabba og fórum svo í bíó. Myndin Journey to the center of the earth varð fyrir valinu og var þetta bara mjög fín mynd. Pínu fyndið samt að fara í svona þrívíddarbíó - gleraugun gera það að verkum að manni finnst stundum að myndin sé aðeins of nálægt.
Eftir um það bil tvo mánuði ætlum við mamma svo að leggja land undir fót og skreppa í helgarferð til Glasgow. Einstaklega heppilegt að fara í verslunarferð þegar krónan er í sögulegu lágmarki… Við krossum bara putta og vonum að staðan eigi eftir að breytast á næstu tveimur mánuðum eða svo. Þeir feðgar ætla að vera tveir saman hér heima og hef ég nú ekki miklar áhyggjur af þeim. Hugsa að Sævar verði bara dauðfeginn að losna við mig í smástund - allavega ef marka má gleðina sem brýst fram þegar hann sér pabba sinn koma heim að loknum vinnudegi
Annars er allt gott að frétta héðan úr Grafarvoginum - snúðurinn okkar heldur áfram að stækka og þroskast og er endalaus gleðigjafi.
Við biðjum að heilsa í bili
Heyrðu! Ég er líka að fara til Glasgow! Bara samt eftir mánuð en ekki tvo
Sérstök ferð til að kaupa nýja “fæðingargjöf” handa Sævari því hin er orðin ALLTOF lítil
hehe