Það er heitt - það er alltof alltof heitt. Allavega á ég einn stubb sem höndlar lífið ekkert alltof vel í þessum hita. Viftan okkar er á yfirsnúningi og kalda vatnið drukkið í lítratali.

 Annars hefur ýmislegt gerst síðan síðast. Gæsaði t.d. hana Salome frænku og VÁ hvað það var gaman :) Svo skellti ég mér á kaffihús með Svönu og Heiðdísi, fór á málverkasýningu í Hveragerði og ýmislegt annað.

Framundan er risaferðahelgi. Við litla fjölskyldan ætlum nú bara að halda okkur heima og skreppa í eitt grillpartý á laugardagskvöldið. Helgina eftir verslunarmannahelgina er svo brúðkaupið hjá Salome og Valtý og ég hlakka alveg óóóendanlega til :)

Læt þetta gott heita í bili - er lélegur bloggari þessa dagana, spurning um að leggja síðuna bara í salt!

2 færslur hjá “…”

  1. heiðdís skrifaði 17. ágúst 2008 klukkan 18:56 :

    Ekki leggja síðuna þína í salt…. Hlakka til hittings þegar ég er búin í veiðihúsinu!!

  2. maplestory mesos skrifaði 19. nóvember 2008 klukkan 08:06 :

    The cheapest maplestory mesos, play maplestory mesos you can Buy maplestory mesos.

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image