Bíó

Að fara í bíó er góð skemmtun… Yfirleitt fer ég mjööög sjaldan í bíó en á síðustu viku hef ég farið tvisvar sinnum.

Fór í bæði skiptin með mömmu og í fyrra skiptið sáum við Sex and the city. Ég hafði nákvæmlega enga trú á þessari mynd, fannst ótrúlegt að hægt væri að gera þolanlega bíómynd eftir sjónvarpsþáttum. En ómæ, myndin var æææææðisleg. Alveg hægt að skellihlæja að henni og hágráta líka :) Ég var ótrúlega róleg að fara svona lengi frá gullmolanum mínum, enda er hann orðinn svo stór og duglegur að hann er ekki eins háður mömmu sinni og hann var :)

Í gærkvöldi fórum við mamma svo í bíó í boði Bylgjunnar á forsýningu á Mamma Mia! Vááá hún var líka æðisleg. Mann langaði bara að standa upp og dansa og syngja með allan tímann :) Vel hægt að mæla með báðum myndunum.

Á morgun verður litli strumpurinn okkar þriggja mánaða. Tíminn líður brjálæðislega hratt, ég verð farin að baka bangsaköku fyrir eins árs afmælið áður en ég veit af!

7 færslur hjá “Bíó”

  1. Ella skrifaði 9. júlí 2008 klukkan 15:34 :

    Gott að það var gaman í bíó :) Sævar var algjör gullmoli á meðan. Enda ekki annað hægt með tvær frænkur að geifla sig framan í hann allann tímann :)

  2. Jóna Benný skrifaði 14. júlí 2008 klukkan 20:52 :

    Rétt upp hönd þeir sem fundu sér bara tíma til að kaupa fæðingar/skírnargjöf en ekki til að afhenda hana í Reykjavíkurferðinni???!!!?! Já takk það var ég… var alveg búin á því eftir að vakna 6:45 og standa svo á vellinum í rigningu fram að kvöldmat og stundum lengur svo ég var ekki líkleg til mikilla afreka :( En nú stefni ég á að koma í höfuðborgina í ágúst og kaupa eitt eða tvö húsgögn í nýju íbúðina sem ég þarf að koma mér fyrir í :) Þá verður litli frændi í forgangi og engar 5-10 ára stelpur með í för ;)

  3. heiðdís skrifaði 15. júlí 2008 klukkan 23:42 :

    ohhhh mig langar svo að sjá Mamma mia!!

  4. Kitta skrifaði 17. júlí 2008 klukkan 12:31 :

    hæ hæ - aldeilis er drengurinn flottastur :)- mikil spretta á honum ;) hehe

    Já, þessar tvær stelpumyndir voru algjört æði - ég dillaði mér þvílíkt með Mamma Mia myndinni og sönglaði með, gat ekki setið kyrr ;)

    Bestu sumarkveðjur - Kitta :)

  5. Elín Björk skrifaði 23. júlí 2008 klukkan 13:43 :

    Jæja, nú verðum við að fara að hittast! Við erum laus alla daga, hvað með ykkur?

  6. Elín Björk skrifaði 23. júlí 2008 klukkan 20:07 :

    Við erum með bíl - yfirleitt amk. Annars er nú lítið mál að hoppa upp í strætó til ykkar þarna uppi í “sveit”! Heyri í þér á morgun!

  7. KSvava skrifaði 29. júlí 2008 klukkan 13:37 :

    Hey ok þú ferð kannski ekki oft í bíó en það hlýtur eitthvað að hafa gerst hjá ykkur síðan þá :) Bíð spennt eftir bloggi :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image