Long time…
Síðan síðast hefur svo sem ýmislegt drifið á daga fjölskyldunnar. Finnur stakk t.d. af til Bretlands og var þar á námskeiði í 10 daga. Við mæðginin vorum því bara tvö hérna heima á meðan og söknuðum hans hrikalega. Mamma bjargaði okkur þó helling með því að bjóða okkur í sumarfrí til Akureyrar. Þar gerðum við ekkert annað en að heimsækja ættingja og hafa það gott.
Hið ótrúlega gerðist svo síðastliðinn mánudag. Sævar Þór ákvað að það væri heppilegur dagur til að byrja að taka snuð. Það hefur verið endalaus barningur síðan hann fæddist til að fá hann til að taka þessa græju, en hann hefur bara viljað gera þetta á sínum hraða!
Ég er hálfófær um að tala um nokkuð annað en barnið mitt - ég geri jú ekkert annað en að hugsa um hann allan sólarhringinn…
Annars voru sumir svona hressir við að sjá að pabbi var kominn heim

Sætasti gaurinn
Flott að hann sé farin að taka snuðið. Verðum svo endilega að hittast aftur fljótlega og gera eitthvað sniðugt
Þvílíkur snúlli! Heppilegt að hann vilji snuðið, mér skilst að það sé ansi vænlegur gripur í barnastússi. Ég myndi eflaust bara gefa honum trommusett eða lest sem skapar gríðarlegan hávaða.
OMG… Ég er svo léleg að fara í tölvuna nema bara til að henda inn einhverjum fótboltafærslum svo ég er ekki að fylgjast nógu vel með. Ég hlakka til að hitta sætasta sem er greinilega ekkert annað en ómotstæðilegur
Er hægt að vera sætari ? NEIBB ekki hægt hehe
ohhh svooooooo sæææææætur
OOooooooo hildur sin kemur eftir nakvæmlega 3 daga 12 tíma i morgun kaffid….eda eitthvad svoleidi
kisskiss
hildúa
ohhhh hvað hann er sætur
Frábært að hitta ykkur um daginn, þó það hafi bara verið í hálfgerðri mýflugumynd
en gullfallegur er hann litli maðurinn, vonandi reddar snuðið meiri afslöppun fyrir mömmuna