Sumar :)
Fimmtudagur, 29. maí 2008Já það er greinilega komið sumar á klakanum. Við mæðginin skelltum okkur í tveggja tíma göngutúr í dag í sólinni. Ég uppskar fínan sólbruna hér og þar og sit því hér rauðflekkótt og agalega smart ![]()
Svo sat ég hér í rólegheitum að gefa Sævari þegar skjálftinn mikli reið yfir. Ég hélt að glerhurðirnar ætluðu úr skápnum hjá okkur, slík voru lætin. Ég fann svo tvo eða þrjá eftirskjálfta seinna. Mér stóð nú hreint ekki á sama í þessum látum, var eiginlega bara skíthrædd… Sonurinn lét þetta að sjálfsögðu ekki fá og var hálf fúll yfir því að vera truflaður af múttunni í matartímanum ![]()
Í dag myndu svo vera sjö vikur síðan sonurinn kom í heiminn - sjii hvað tíminn líður hratt. Hann verður farinn að labba áður en ég veit af!
Hver er svo með í göngutúr í næstu viku?




