Update
Lífið er nú bara yndislegt. Litli strumpurinn okkar þarf stundum að láta hafa dáldið fyrir sér, en oftast er hann ljúfur sem lamb. Maður getur náttúrlega endalaust horft á hann og reynt að fatta að við eigum hann - það hefur sem sagt ekki ennþá kikkað inn. Ég er náttúrlega löngu búin að gleyma 18 klukkutímum af mjög hörðum hríðum og er nokkuð viss um að það hafi ekki verið svo slæmt að koma honum í heiminn
Það er síðan nokkuð ljóst að ég mjólka á við verðlaunabelju þar sem hann þyngist mjög vel. Snúðurinn fær svo nafn þann 10. maí nk. ![]()
Algjörlega hlutlaust mat - þetta er sætasta barn í heimi
Hæ hæ. Ég vildi bara segja innilega til hamingju með litla prinsin
Hann er líkur þér Lovísa mín. Við verðum mömmur á sama árinu, ég er í lok ágús 
Gangi ykkur rosalega vel. kv Hjalta
Hehe auðvitað á maður alltaf sætasta barnið
Verð nú bara að segja að á efri mynd er nú soldið mömmu svipur með honum
Það er nú ekki slæmt
Algjör bjútímonsa
Jiminn hvað maður er sætur
Hann er bara æði
greinilega strumpafjölskylda, ég kallar mínar svo oft strumpa svo sennilega er það í ættinni. Man eftir mynd af Eyþóri litlum og finnst hann líkur honum á neðri myndinni
Alger bjútí…
Sæl og til hamingju með sæta, sæta, sæta prinsinn ykkar.
Kossar og knús,
Ásta Andrésar
The cheapest maplestory mesos, play maplestory mesos you can Buy maplestory mesos.