Enn og aftur kærar þakkir fyrir allar kveðjurnar sem okkur hafa borist eftir ýmsum leiðum. Við erum virkilega hrærð yfir því hvað margir hugsa til okkar vilja fylgjast með rúsínunni okkar.

En svona af gefnu tilefni - þegar sótt er um aðgang að heimasíðunni hans þá samþykkjum við notandann en sendum ekki mail til að láta vita að aðgangurinn hafi verið samþykktur. Allar beiðnir hafa verið samþykktar svo það er ekki eftir neinu að bíða en að fara að kíkja á litla strákinn okkar. Náðum t.d. mjög skemmtilegri “bros”mynd af honum - meltingin eitthvað að gleðja hann greinilega ;)

Skrifa meira seinna - er aðeins upptekin við að vera mamma :)

8 færslur hjá “…”

  1. Jóna skrifaði 16. apríl 2008 klukkan 16:40 :

    oooo ég er svo mikill sauður! Skráði mig með aðgang í skólanum… nenni ekki að hafa aðgang hérna í Tjarnarlundi því ég er að fara að flytja… ætla að fá mér aðgagn heima hjá pabba þannig að nú get ég bara skoðað stúfinn í skólanum ;) En vonandi er allt eins og blómstrið eina :) Sendi ykkur þéttingsfast knús og helling af kossum :*

  2. Ilmur skrifaði 17. apríl 2008 klukkan 10:47 :

    Hæ hæ og velkomin heim með snúðinn. Ég sendi um daginn beiðni um aðgang og það kemur eins og skráningin hafi gengið í gegn.. notendanafnið mitt (ilmur) upptekið þ.e.a.s. en ég kemst samt ekki inn :( er voða voða voða spennt að sjá litla krúsílíus. Þú kannski kíkir á þetta við tækifæri svo tölvulúðinn geti skoðað strákinn :).

  3. Sara skrifaði 17. apríl 2008 klukkan 19:13 :

    Hæ mama-Lovísa!

    Ég er svo mikill álfur þegar það kemur að svona heimasíðum… Ég er búin að sækja um aðgang tvisvar en man ekki hvernig ég gerði í fyrra skiptið… :/ Þannig að ég held að ég verði að fá samþykki aftur…

    Sara sauður Sundsvallari

  4. Karen og Heiða Dögg skrifaði 18. apríl 2008 klukkan 13:35 :

    Hæ sæta fljölskylda…líka vesen hjá okkur…kemst bara stundum inn og stundum ekki…ekki búin að komast inn í 3 daga og orðin soltið óþolinmóð að geta ekki skoðað prinsinn daglega ;)

    Vonandi gengur allt vel hjá ykkur…

    Karen og Heiða Dögg

  5. Eva María skrifaði 21. apríl 2008 klukkan 15:23 :

    Ó! Takk fyrir að láta vita af þessu. Var eitthvað alveg við það að fara að móðgast… best að reyna þá að muna lykilorðið sem ég bað um.

  6. Guðrún Arna skrifaði 21. apríl 2008 klukkan 16:57 :

    Hæ hæ Lovísa og Finnur. Innilega til hamingju með prinsinn, þetta er bara best í heimi að fá svona gjöf að verða foreldri. Gangi ykkur vel og aldrei að vita nema við hittumst eitthvað í suma ;)
    Kveðja úr Grindavík

  7. Heiður skrifaði 22. apríl 2008 klukkan 17:38 :

    Elsku Lovísa (ég myndi segja Finnur líka en það er pínu skrítið þegar manns hefur ekki hitt hann), innilega til hamingju með krílið. Yndislegt að hugsa til þín með lítið barn, sérstaklega þar sem ég hitti þig ekkert á meðan þú varst ólétt og ekki alveg búin að tengja þig við barn, hehe.

    Vonandi gengur allt eins og í sögu. Aldrei að vita nema sameiginlega vinkonan hún Hildur verði til þess að maður hittir ykkur eitthvað í sumar.

  8. maplestory mesos skrifaði 19. nóvember 2008 klukkan 07:56 :

    The cheapest maplestory mesos, play maplestory mesos you can Buy maplestory mesos.

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image