040408

Þetta kríli er augljóslega ekki hrifið af svona flottum byrjunum á kennitölum. Vill bara finna sér sína eigin samsetningu án þess að ég sé eitthvað að skipta mér af.

Vorum sem sagt að koma úr skoðun - það er allt í rólegheitunum og ekkert að gerast. Eigum skoðun aftur á mánudaginn og þá verður nú hreyft við einhverju ef krílið verður ekki komið.

Sendið okkur nú alla mögulega strauma sem þið getið þar sem örlítill vottur af pirringi og óþolinmæði er farinn að gera vart við sig ;)

3 færslur hjá “040408”

  1. Elín Björk skrifaði 4. apríl 2008 klukkan 16:49 :

    Ég myndi nú ráðleggja þér að hrekja pirringspúkann bar aftur til sinna heima, enda dugar það lítið.

    Það er fullt fullt af flottum kennitölum eftir! - Og svo held ég svei mér þá að það sé mikið betra að telja niður heldur en “upp” t.d. þegar það eru max 14 dagar í fæðingu að telja niður frá 14 - frekar en að telja dagana frá settum degi. Maður verður svo rosalega glaður ef krílið kemur fyrir 14. dag… hey bara komið barn og samt 7 dagar eftir!!

    Sendi annars alla mögulega strauma!

  2. Ella skrifaði 5. apríl 2008 klukkan 08:54 :

    Krílið ætlar greinilega að eiga uppáhaldsfrænku sem nær kannski heim í tíma ;) Dreymdi samt sms-ið í nótt og þá var þetta stelp :)

  3. KSvava skrifaði 5. apríl 2008 klukkan 17:40 :

    Hey 08.04.08 er flott dagsetning, bara þrír dagar í það :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image