Settur dagur
020408 er runninn upp - hinn flottasti afmælisdagur finnst mér. Það eru nú samt ekki allir sammála mér og hafa því ákveðið að halda sig bara inní hlýjunni ennþá.
Ósköp lítið frá að segja svo sem, enda er maður bara að bíða eftir litla krúttinu. Magnað eiginlega að meðgöngunni sé að ljúka. Þetta hefur liðið töluvert hraðar en ég bjóst við, held ég geti þakkað góðri heilsu að þetta hefur lítið sem ekkert truflað mig.
Jú auðvitað hef ég orðið þreytt og pirruð og allt það, en hef að mestu sloppið við fylgikvilla meðgöngu almennt. Grindin virtist ætla að stríða mér frá því á fjórða mánuði - hún hefur bara haldið sig til baka síðan þá. Ógleðin ætlaði mig lifandi að drepa á tímabili, en því lauk og hefur ekki látið kræla á sér aftur. Bumban þvælist merkilega lítið fyrir mér - eina sem er óvanalegt er að ég get ekki sofið á maganum.
En nú má McBumbos sem sagt fara að koma í heiminn og kynnast öllum aðdáendum sínum, sem eru sko ekki fáir
Yndislegt alveg. Rimlarúmið við hliðina á rúminu okkar er næstum því farið að rykfalla svo það er eins gott að á allra næstu dögum verði komið lítið kríli sem fær að kúra í rúminu.
Ég er sumsé alltof hress miðað við hvaða dagur er í dag, takk fyrir að spyrja
Ég segi að litli grallarinn komi 080408
þaðe r líka magnaður dagur hehe
Hlakka mikið til að bera þetta kríli augum !
kv Solla
áttundi er orðinn óþolandi vinsæll dagur hjá giskurum… 6 dagar eftir - úff!
Já nú er biðin byrjuð fyrir alvöru… spennandi hvenær bumbubúinn ákveður að koma, en hann velur sinn sérstaka dag
Hey áttundi dagurinn er bara flottastur, spáðu, þetta er tala eilífðarinnar eða svo var logið að mér en ég er einmitt áttunda júní
Já eins og ég sagði í upphafi krílið kemur 08.04.08 alveg handviss en þangað til njóttu og farðu vel með þig Lovísa mín og gangi þér vel að anda úfffffffffff sei sei segi ekki meir thi hi hi
Bellós
Vonandi bíður hann eftir mé
Bið rosa vel að heilsa ykkur. Er að skemmta mér konunglega í Norge og búin að eyða allt of miklum penin
Tjah - barnið lætur ennþá bíða eftir sér. Áttundi er ALLT of langt í burtu.
Gott þú ert að skemmta þér Ella - við förum seinna í svona stelpuferð
04.04.2008 Þetta er flottur fæðingardagu
Er ekki málið að byrja að skokka upp og niður stiga eða besta ráðið í bókinni kannski, reyndar krefst það þess að Finnur sé heima…:p
jæja það er fjórði og styttist í þetta, barnið kemur eftir fjóra daga, hvíldu þig bara þangað til
jæja, 5 dagar eftir! Eins og ég hef alltaf sagt þann níunda
Fjúff ég er ekki að trúa þessu!
Ooooo þið eruð svo leiðinlegar - ég vil ekkert bíða lengur, þetta á bara að gerast núna. Þið megið alveg óska þess, ekki svona langt fram í tímann