Aprílgabb!

Þá er 1. apríl runninn upp - settur dagur er á morgun. Mánuðurinn sem búið er að bíða eftir í átta mánuði er sem sagt kominn - það verður víst ekki umflúið að við Finnur fáum nýtt hlutverk í þessum mánuði. Afskaplega spennandi, jafnframt pínu skerí!

Það er ekkert sem bendir til þess að barnið sé á leiðinni, nákvæmlega ekki neitt. Kannski er ég bara svona afburða góður hýsill að barnið vill ekki yfirgefa hlýjuna strax…

Við skulum nú samt ekki fara að bíða fyrr en í næstu viku - það er samt píííínu erfitt þegar maður þekkir rúmlega 40 aðrar óléttar stelpur sem allar eiga von á sér í apríl. Nú þegar eru 3 börn fædd úr hópnum og tvær eru í fæðingu as we speak! Pant ég vera næst ;)

5 færslur hjá “Aprílgabb!”

  1. Kitta skrifaði 1. apríl 2008 klukkan 16:53 :

    Ji - þetta er bara allt að bresta á ;) fylgist spent með Lovísa mín - baráttukveðjur á síðustu metrunum ;)

    kv. Kitta :)

  2. Karen og Heiða Dögg skrifaði 2. apríl 2008 klukkan 11:13 :

    Ohhh…til hamingju með daginn
    Og gangi þér alveg sjúklega vel stelpuskjáta

  3. Lovísa skrifaði 2. apríl 2008 klukkan 14:25 :

    Takk darlings :)

  4. Elín Björk skrifaði 2. apríl 2008 klukkan 15:01 :

    Heyrðu mig, nú þarf að blogga á HVERJUM degi - svo maður viti nú hvað er að gerast !!

  5. Hjördís skrifaði 2. apríl 2008 klukkan 15:12 :

    Sammála því nú þarf að blogga á hverjum degi :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image