Dagurinn?

Í dag er 27. mars - ekkert sérstakt við þennan dag nema það að Finnur hefur haldið því fram alla meðgönguna að þetta sé dagurinn sem barnið okkar fæðist. Sennilega er spádómsgáfa hans ekki uppá sitt besta því það er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að barnið sé á leiðinni í heiminn í dag. Enn eru þó 6 dagar í settan dag svo ég er allavega ekki farin að bíða. Já og það eru reyndar 11 tímar eftir af deginum - spurning hvað gerist ;)

Annars er allt við það sama - heilsan er stórfín, McBumbos er ennþá þrjóskupúki og stríðnispúki og neitar að skorða sig þannig að ég vona að fæðingin fari ekki af stað með því að vatnið fari. Líkurnar eru svo sem mér í hag, enda ekki nema 15% fæðinga sem fara þannig af stað.

Og þá er best að halda afslöppuninni áfram :)

Einn á lífi hjá “Dagurinn?”

  1. Ella skrifaði 28. mars 2008 klukkan 08:42 :

    Jæja ég held með deginum í dag :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image