Sjiiii
Fyrir eitt þúsund krónur getur þú fengið rúmlega sex og hálfan líter af bensíni. Það dugar þér ekkert sérstaklega langt. Ég man þegar ég var að vinna sem bensíntittur og fólk rétti 500 kall útum gluggann og komst bara nokkuð langt á þeim dropum. Í dag kæmistu út af bensínstöðvarplaninu, og þá ertu aftur orðinn bensínlaus. Hvar í ósköpunum endar þetta eiginlega?
Annars er það að frétta að við Finnur brunuðum í verslunarferð á laugardaginn og kláruðum að versla fyrir McBumbos. Finnur mundaði svo skrúfjárnið sem aldrei fyrr og klambraði öllu dótinu saman svo nú er allt orðið reddí fyrir komu erfingjans. Fötin hanga til þerris á snúrunum, pínu fyndið að taka öll þessi strumpaföt úr vélinni - píííínulítil
Það á reyndar eftir að kaupa bleyjur á orminn, en það er nú ekki hundrað í hættunni…
Páskarnir alveg að bresta á - er orðin spennt að vita hvort ég fái ekki eins og eitt páskaegg þetta árið
Þú ert búin að fá eitt páskaegg.
ohh ég hélt það hefði verið handa þér - þá er ég bara spennt að vita hvort ég fái ekki eins og tvö páskaegg þetta árið
Sem betur fer keyri ég svo lítið segi ég nú bara… En engu að síður svakalegt!
Bannaði mömmu alltaf að gefa mér egg þegar ég var yngri, vildi frekar peninginn eða bland í poka..
Veit ekki hvort ég fæ páskaegg þetta árið, hafði ekki fengið páskaegg örugglega síðan ég var 8 ára þangað til í fyrra þegar ég fékk þrjú… Langar ekkert í egg, væri frekar til í marengstertu
Vorum að tala um að hittast á Langa föstudeginum í mat og spil! Hvernig líst ykkur hjúum á það?
knús á línuna
Hæ sæta mín. Takk fyrir daginn, ótrúlega gaman að hitta þig. Vona að við getum öll hisst á föstudaginn.
Hæ dúllan. Takk fyrir sæt comment. Ég sé að það fer að styttast í að bumbubúinn fari að láta sjá sig. Ég bara verð að segja það að nýþvegin lítil barnaföt hangandi á snúru/þurrkgrind er held ég það krúttlegasta eve
og svo auðvitað litlir barnakrúttskó
já og lítil barnakrút
allt bara sem við kemur börnum er óstjórnlega krúttleg
Hafið það gott um páskana dúllurna
Hæ hæ - ji hvað þetta er spennandi
já, finnst þér ekki gaman að þvo fötin og gera klárt?
þetta fannst mér vera meiriháttar þegar ég fór loksins að þvo fötin af Elísabetu og setja í skápinn og gera klárt fyrir ferðina
bara yndislegt. Það er ennþá mjög gaman að þvo fötin hennar - hehe
Ertu með einvherja síðu á Barnalandi/Barnaneti?
Bestu kveðjur og gangi ykkur vel - hlakka til að frétta meira.
Gleðilega páska -
Kitta (sem getur ekki sofið út lengur)
Heiðdís: Já ég man eftir því að þú vildir aldrei páskaegg… en jú við ættum að vera laus á morgun, heyri í þér í dag

Svana: Takk sömuleiðis, þetta var alveg frábært
Nanna: Æj já, þetta er voðalega krúttlegt allt saman. Sérstaklega samt pínulitlu Puma og Nike skórnir sem bíða notkunar.
Kitta: Nei við erum ekki með neina heimasíðu fyrir krílið. Veit ekki hvort slík síða verður sett upp…
heyrðu, ég rændi svo miklum mat upp í vinnu að ég held ég verði með hlaðborð