Díses kræst

Kvöldunum sem hægt er að skjótast út, svona spontant, fjölgar víst ekkert svo við Finnur ákváðum að drífa okkur á deit í gærkvöldi. Fórum út að borða og skelltum okkur svo í leikhús. Fórum að sjá Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu - kannski ekki beint leiksýning, meira svona eins og tónleikar. Mér fannst þetta samt ógeðslega gaman þó þetta væri heldur mikið rokk. Má vel vera að ég sé ægilega hlutdræg, en mér fannst Jenni frændi standa laaaangt uppúr - allavega hvað sönginn í sýningunni varðaði.

Annars vorum við McBumbos að koma úr skoðun. Fengum að sjálfsögðu stórfína skoðun - en prakkarinn okkar er hins vegar ekki búin/n að skorða sig. Sem þýðir það að ef vatnið færi akkúrat núna þá væri það bara 112 - sjúkrabíll strax takk. Við nennum nú ekki svoleiðis veseni þannig að nú fara í gang harðar samningaviðræður ;)

Lovlí helgi framundan - hellingur af hittingum sem mér finnst nú ekki leiðinlegt… sérstaklega svona í ljósi þess að ég hitti ekkert ofsalega mikið af fólki á hverjum degi ;)

Góða helgi :)

2 færslur hjá “Díses kræst”

  1. KSvava skrifaði 14. mars 2008 klukkan 16:47 :

    Ohh hvað mig langar á þessa leiksýningu, er ekki að koma mér í það að kaupa mér miða :S Gangi þér vel með samningaviðræðurnar, gekk ekki hjá mér þegar ég reyndi að semja við stelpuna um að koma út.. hún lét sko bíða eftir sér.

  2. Lovísa skrifaði 15. mars 2008 klukkan 11:44 :

    Ég er minna í því að ræða við barnið um hvenær það eigi að koma út - meira í því að það eigi að skorða sig ;)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image