Ef ég væri ekki ólétt - þá veit ég sko alveg hvað ég væri að fara að gera næstkomandi föstudagskvöld. Tuttugu ára afmælistónleikar Sálarinnar… Men ó meeeen hvað mig langar á þá, en það er víst bara laust pláss á gólfinu, ekki í stúkunni og það er algjörlega sénslaust að ég sé að fara að standa á þessum tónleikum í marga klukkutíma. Í alvöru þá er Sálin búin að vera uppáhaldshljómsveitin mín síðan þeir gáfu út “Syngjandi sveittir” árið 1988. Pant ekki vera ólétt þegar þeir halda uppá 30 ára afmælið sitt með ennþá flottari tónleikum - ég skal vera fyrst til að kaupa mér miða!

Páskarnir framundan og vá hvað ég ætla að fá mér páskaegg. Hef ekki fengið mér páskaegg í þrjú ár en nú skal sko verða breyting á ;) Eftir að páskaeggið er búið, þá má McBumbos koma. Ætla sko að vera búin að öllum undirbúningi og allt fyrir páska svo það sé ekkert mál að liggja með tærnar uppí loft alla páskana og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu :)

Hreiðurgerð í fullum gangi - best að hætta pásunni og halda áfram að taka til í barnaherberginu :)

12 færslur hjá “…”

  1. Heiðdís skrifaði 11. mars 2008 klukkan 17:53 :

    OMG! þetta er svo að fara að gerast, ég er ekki að trúa því.. :)

  2. Svana skrifaði 11. mars 2008 klukkan 20:33 :

    sama segi ég…. :)

  3. Lovísa skrifaði 11. mars 2008 klukkan 22:40 :

    Alveg rólegar - það geta alveg verið 5 vikur í orminn þó að settur dagur sé eftir 3 vikur… Þýðir ekkert að fara að bíða fyrr en eftir svona 4 vikur :)

  4. heiðdís skrifaði 11. mars 2008 klukkan 23:54 :

    já það er sko aaaaaalveg mjög fljótt að líða! ;)

  5. Jóna skrifaði 12. mars 2008 klukkan 10:20 :

    Sjiiiiiittt ó já það er sko fljótt að líða!!!

  6. Anna Rut skrifaði 12. mars 2008 klukkan 10:38 :

    Já eða krílið geri bara eins og nafna þín, komi 4 vikum fyrir tíman… nei það er liðið, þrjár þá ;)

  7. Lovísa skrifaði 12. mars 2008 klukkan 11:09 :

    hehe neinei - við erum búin að ræða saman og höfum náð samkomulagi um að 1. eða 2. apríl sé sérstaklega góður afmælisdagur.

  8. Ella skrifaði 12. mars 2008 klukkan 12:24 :

    höfum það þá 1.apríl ;)

  9. Lovísa skrifaði 12. mars 2008 klukkan 13:00 :

    Jább Ella - það er flottur dagur ;)

  10. Hjördís skrifaði 12. mars 2008 klukkan 14:06 :

    Ohh þetta er spennó :) Ég heyri varla orðið í sjálfri mér fyrir eggahljóðum… Ætti kannski að fara að gera eitthvað í þessu hmm

  11. TGT skrifaði 12. mars 2008 klukkan 21:39 :

    Bara lata vita ad madur kikir a siduna af og til
    svona til ad fa frettir i utlandid

  12. Lovísa skrifaði 13. mars 2008 klukkan 10:27 :

    Já Hjördís - spurning um að fara að gera eitthvað í þess ;)

    Hæ Torfi (giska á Torfa allavega) gaman að sjá þig hér - kveðjur í útlandið :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image