…
“Þú þarft bara að halda í þér í viku í viðbót, eftir það er þér alveg velkomið að fæða þetta barn” - þetta tilkynnti ljósan mér í skoðuninni áðan. Mmm ókei, ég held ég bíði aðeins lengur, takk samt! Fjúff!
Annars þurfti ég að draga Finn úr vinnunni og saman skutluðumst við uppá spítala þar sem þurfti að setja mig í monitor. Hjartslátturinn hjá McBumbos var á yfirsnúningi en um leið og við komum okkur þægilega fyrir á lansanum þá snardatt hann niður og Bumbos hagaði sér eins og fyrirmyndarnemandi. Hvaðan í ósköpunum ætli þetta barn fái prakkaraormagenin?? Ehhh ![]()
Annars er svo sem fátt að frétta, nema það að mér hundleiðist. Og já ég er hreint ekkert að ýkja það. Og ég er bara búin að vera heima í tvær vikur tæpar… Ætla nú samt að gera mér glaðan dag og fá mér hádegismat með öðrum verðandi aprílmömmum á morgun, magnað að eignast svona kunningjakonur í nákvæmlega sömu aðstöðu og maður sjálfur ![]()
Júh og svo ætla ég að næra gömlu fimleika”drottninguna” í sjálfri mér og horfa á mágkonu mína keppa í fimleikum á laugardaginn - er ekki spurning um að ég skelli mér í eins og eitt handahlaup af því tilefni?
Heyrðu - löns á föstudaginn eða í næstu viku?? Fyrst ég vinn svona í göngufjarlæg frá þér!
oooooooooooooooooo spennandi!!!! Jiiiiii eg er AAAALVEG ad fara úr límingunum!!! OOoooooo hlakka til næstu daga…..:
endalaust knús til ykkar verðandi foreldra
Kisskisskisskiss
hildur
hey við eigum deit á föstudaginn
ekki gleyma því!
Elín: Ég er ekki laus á föstudaginn þannig að það verður að vera næsta vika.
Hildur: It´s alive… nú þarf ég að fara að heyra í þér stelpa
Heiðdís: Var að sjálfsögðu ekki búin að gleyma því
Deit í Gerpluhúsinu á laugardag klukkan 15:00…kannski aðeins fyrir það
Já um að gera að smella sér í handahlaup, ég var nú svo gróf að láta plata mig á skíði þegar ég ólétt og þar sem ég kann ekki á skíði þá hafði ég vit á því að renna mér nánast alla brekkuna á rassinum haha en fór svo yfir í golfið í staðinn, aðeins hættulausara
æji mótið í dag fór ekki alveg eins og planað þannig við keppum ekki á morgun :/ en næsta mót er 18. apríl í Bergen í Noregi þú og Kalli litli/Stína litla komið bara að horfa þá
Vá - þetta er bara að bresta á hjá ykkur
- en spennandi og ég er líka spent að frétta af nýja fjölskyldumeðliminum
Bestu baráttukveðjur á síðasta endasprettinum og gangi ykkur voða vel - Kitta