Lendingardagur McBumbos?
Föstudagur, 28. mars 2008Smá könnun - hvenær heldur þú að McBumbos láti sjá sig?
1. apríl fær mitt atkvæði
Smá könnun - hvenær heldur þú að McBumbos láti sjá sig?
1. apríl fær mitt atkvæði
Í dag er 27. mars - ekkert sérstakt við þennan dag nema það að Finnur hefur haldið því fram alla meðgönguna að þetta sé dagurinn sem barnið okkar fæðist. Sennilega er spádómsgáfa hans ekki uppá sitt besta því það er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að barnið sé á leiðinni í heiminn í dag. Enn eru þó 6 dagar í settan dag svo ég er allavega ekki farin að bíða. Já og það eru reyndar 11 tímar eftir af deginum - spurning hvað gerist ![]()
Annars er allt við það sama - heilsan er stórfín, McBumbos er ennþá þrjóskupúki og stríðnispúki og neitar að skorða sig þannig að ég vona að fæðingin fari ekki af stað með því að vatnið fari. Líkurnar eru svo sem mér í hag, enda ekki nema 15% fæðinga sem fara þannig af stað.
Og þá er best að halda afslöppuninni áfram
Gleðilega páska
Vonandi fara páskaeggin vel í ykkur - Ríseggið mitt lofar allavega góðu svona í hádegismatinn… ![]()
Annars hafa páskarnir verið nokkuð næs so far. Sólarhringurinn er gjörsamlega orðinn öfugur, búið að spila og borða góðan mat - ljúfa lífið. Um að gera að slappa svona vel af áður en lætin hefjast. 10 dagar í settan dag
Fyrir eitt þúsund krónur getur þú fengið rúmlega sex og hálfan líter af bensíni. Það dugar þér ekkert sérstaklega langt. Ég man þegar ég var að vinna sem bensíntittur og fólk rétti 500 kall útum gluggann og komst bara nokkuð langt á þeim dropum. Í dag kæmistu út af bensínstöðvarplaninu, og þá ertu aftur orðinn bensínlaus. Hvar í ósköpunum endar þetta eiginlega?
Annars er það að frétta að við Finnur brunuðum í verslunarferð á laugardaginn og kláruðum að versla fyrir McBumbos. Finnur mundaði svo skrúfjárnið sem aldrei fyrr og klambraði öllu dótinu saman svo nú er allt orðið reddí fyrir komu erfingjans. Fötin hanga til þerris á snúrunum, pínu fyndið að taka öll þessi strumpaföt úr vélinni - píííínulítil
Það á reyndar eftir að kaupa bleyjur á orminn, en það er nú ekki hundrað í hættunni…
Páskarnir alveg að bresta á - er orðin spennt að vita hvort ég fái ekki eins og eitt páskaegg þetta árið
Kvöldunum sem hægt er að skjótast út, svona spontant, fjölgar víst ekkert svo við Finnur ákváðum að drífa okkur á deit í gærkvöldi. Fórum út að borða og skelltum okkur svo í leikhús. Fórum að sjá Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu - kannski ekki beint leiksýning, meira svona eins og tónleikar. Mér fannst þetta samt ógeðslega gaman þó þetta væri heldur mikið rokk. Má vel vera að ég sé ægilega hlutdræg, en mér fannst Jenni frændi standa laaaangt uppúr - allavega hvað sönginn í sýningunni varðaði.
Annars vorum við McBumbos að koma úr skoðun. Fengum að sjálfsögðu stórfína skoðun - en prakkarinn okkar er hins vegar ekki búin/n að skorða sig. Sem þýðir það að ef vatnið færi akkúrat núna þá væri það bara 112 - sjúkrabíll strax takk. Við nennum nú ekki svoleiðis veseni þannig að nú fara í gang harðar samningaviðræður ![]()
Lovlí helgi framundan - hellingur af hittingum sem mér finnst nú ekki leiðinlegt… sérstaklega svona í ljósi þess að ég hitti ekkert ofsalega mikið af fólki á hverjum degi ![]()
Góða helgi
Ef ég væri ekki ólétt - þá veit ég sko alveg hvað ég væri að fara að gera næstkomandi föstudagskvöld. Tuttugu ára afmælistónleikar Sálarinnar… Men ó meeeen hvað mig langar á þá, en það er víst bara laust pláss á gólfinu, ekki í stúkunni og það er algjörlega sénslaust að ég sé að fara að standa á þessum tónleikum í marga klukkutíma. Í alvöru þá er Sálin búin að vera uppáhaldshljómsveitin mín síðan þeir gáfu út “Syngjandi sveittir” árið 1988. Pant ekki vera ólétt þegar þeir halda uppá 30 ára afmælið sitt með ennþá flottari tónleikum - ég skal vera fyrst til að kaupa mér miða!
Páskarnir framundan og vá hvað ég ætla að fá mér páskaegg. Hef ekki fengið mér páskaegg í þrjú ár en nú skal sko verða breyting á
Eftir að páskaeggið er búið, þá má McBumbos koma. Ætla sko að vera búin að öllum undirbúningi og allt fyrir páska svo það sé ekkert mál að liggja með tærnar uppí loft alla páskana og þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu ![]()
Hreiðurgerð í fullum gangi - best að hætta pásunni og halda áfram að taka til í barnaherberginu
“Þú þarft bara að halda í þér í viku í viðbót, eftir það er þér alveg velkomið að fæða þetta barn” - þetta tilkynnti ljósan mér í skoðuninni áðan. Mmm ókei, ég held ég bíði aðeins lengur, takk samt! Fjúff!
Annars þurfti ég að draga Finn úr vinnunni og saman skutluðumst við uppá spítala þar sem þurfti að setja mig í monitor. Hjartslátturinn hjá McBumbos var á yfirsnúningi en um leið og við komum okkur þægilega fyrir á lansanum þá snardatt hann niður og Bumbos hagaði sér eins og fyrirmyndarnemandi. Hvaðan í ósköpunum ætli þetta barn fái prakkaraormagenin?? Ehhh ![]()
Annars er svo sem fátt að frétta, nema það að mér hundleiðist. Og já ég er hreint ekkert að ýkja það. Og ég er bara búin að vera heima í tvær vikur tæpar… Ætla nú samt að gera mér glaðan dag og fá mér hádegismat með öðrum verðandi aprílmömmum á morgun, magnað að eignast svona kunningjakonur í nákvæmlega sömu aðstöðu og maður sjálfur ![]()
Júh og svo ætla ég að næra gömlu fimleika”drottninguna” í sjálfri mér og horfa á mágkonu mína keppa í fimleikum á laugardaginn - er ekki spurning um að ég skelli mér í eins og eitt handahlaup af því tilefni?