…
Svo virðist sem snúningsstraumarnir héðan og þaðan hafi virkað. Allavega staðfesti ljósan það í gær að McBumbos liggur ekki lengur þvert
Hún gat hins vegar ekki vitað hvort barnið er í höfuðstöðu eða sitjandi stöðu, það kemur vonandi í ljós í næstu viku.
Annars er frá því að segja að ég er nú formlega komin í fæðingarorlof. Ég fer sumsé ekki að vinna fyrr en í febrúar á næsta ári. Búin að skila inn læknisvottorði og taka til á borðinu mínu í vinnunni. Þetta er nú alveg pínu skrýtið að vakna þegar Finnur fer í vinnuna til þess eins að fara fram í stofu og leggjast uppí sófa. Ég er því heima og til í alls konar skemmtilegheit ef einhver á lausan tíma whenever ![]()
Eðli málsins samkvæmt er því ekki til mikið efni í bloggfærslu svo ég bið ykkur bara vel að lifa
Glæsilegt að litli/litla frændi/frænka hafið ákveðið að koma sér af hliðinn
Ég er með rosa verkefni fyrir þig á meðan þú bíður eftir krílinu…finna fína íbúð fyrir mi
Hæ sæta. Þú lítur geðveikt vel út á árshátíðarmyndinni hér fyrir neðan. Fjólublár er þinn litur…bara v
Gott að heyra að bumbubúinn ákvað að vera hlíðinn og snúa sé
ég er líka með verkefni
gera allt heimanám fyrir mig 
kv. birna mágkona sem var að uppgötva síðuna þína
Takk Nanna
Og þið systur - snillingar í að finna verkefni handa mér, bring them on