Fjúff! Þvílík helgi…
Það byrjaði nú allt saman á fimmtudaginn þegar ég fór í mæðraskoðun og þaðan beint heim. Mér var sem sagt harðbannað að fara að vinna, er að fara til læknis á morgun og þá kemur í ljós hvort ég fái eitthvað að fara að vinna aftur. Ef ekki, þá er um það bil eitt ár þar til ég fer út á vinnumarkaðinn aftur. Það finnst mér pínu skrýtið! Nú þarf svo að vinna í því næstu vikuna að fá orminn til að snúa sér. Krílið liggur sumsé þvert - með höfuðið undir hægri rifbeinunum á mér og þvert yfir bumbuna. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að fæða barn sem liggur í þeirri stellingu þannig að nú er bara að krossa putta og vona að McBumbos sé ofsalega hlýðið barn og verði komið í rétta stöðu eftir rúma viku ![]()
Föstudagurinn rann svo upp og byrjaði hann á beikonsteikingu hjá mér. Elsku uppáhaldsuppáhaldið mitt varð þrítugur á föstudaginn og að sjálfsögðu fékk hann morgunmat í rúmið og pakka
Dagurinn fór svo í undirbúning á mega-partýinu sem við héldum um kvöldið. Þvílíkt sem dagurinn heppnaðist vel og sáttara afmælis”barn” hef ég bara aldrei séð ![]()
Í gær smelltum við okkur svo í dansskóna og fórum á árshátíð Nýherja þar sem Finnur byrjar að vinna þar 3. mars nk. Geggjaður matur og góð skemmtiatriði verð ég nú bara að segja. Fullt af skemmtilegu fólki sem kom og talaði við “nýja manninn” og leggst þessi breyting því bara vel í fjölskyldumeðlimi
Hugsa nú samt að þetta útstáelsi á okkur hafi verið það síðasta á meðgöngunni. Bumban er aðeins farin að taka í og þá er bara langbest að vera í þægilegum fötum ![]()
Hér má svo sjá McBumbos í öllu sínu veldi á leiðinni á árshátíð
Vá það gjörsamlega geislar af þér! Þið eruð stórglæsileg bæði tvö
Og til hamingju með bóndann!
Vá þú lítur ekkert smá vel út og já það geislar svo sannarlega af þé
Takk fyrir síðast
ég sé þú hefur verið stórglæsileg á árshátíðinni. Vonandi finnur þú þér fullt að gera á meðan þú ert í fríi.
ooooo lovísa skínandi engill!!! Ofaslega líturu vel út….alveg geislað meira…kisskiss til ykkar elsku fjölskyld
kv. hildur
ÆJ takk elskurnar
Guð minn góður hvað þú lítur vel út!!! Ég skal segja ykkur það… !!!
Eina viku??? Af hverju eina viku? Hvað gerist þá? Þú átt ekki að eiga eftir eina viku??? Ég ætla nefnilega að sjá þig ólétta og ég kem ekki til Reykjavíkur fyrr en 20. mars!
Jæja hafðu það gott og haltu áfram að vera svona geislandi fögur tilvonandi móðir
Takk Jóna mín
Þú færð alveg að sjá mig ólétta þó þú komir til Reykjavíkur 20. mars - ég verð alveg ennþá hýsill þá sko
Hæ hæ .. þú ert ekkert smá myndarleg og já það gersamlega geyslar af þér!! til lukku med þetta elskan og vonað McBumbos farað snúa sér
ooooo hvað þú er floooott og já það geislar svo sannarlega af þér. Innilega til hamingju með manninn, verðum svo að hittast mjöööög fljótlega eftir að ég kem heim ok
Mig langar svo að finna eitt spark…
Hæ hæ Lovísa. Ég varð nú bara að kvitta aðeins fyrir komina. Jiiii hvað þið eruð flott
Hugsa snúningsstrauma til ykkar næstu daga hehe
Takk
Það veitir ekki af snúningsstraumunum Sædís
Flott kúla, þetta fer þér vel
Snúningskveðjur frá Höfn