Aaaaahhh! Mikið finnst mér þetta veður hressandi. Var alveg komin með ógeð á snjó og hálku. Ekki óléttri konu bjóðandi að labba í þessari færð - ekki einu sinni frá bíl og að húsi.

Skellti mér á Háskóladaginn á laugardaginn - fann nám sem mig langar ó svo mikið í. Meistaranám í blaða- og fréttamennsku. Hægt að taka það á lengri tíma en tveimur árum svo ég gæti byrjað strax í haust í fæðingarorlofinu… Miklar og djúpar pælingar í gangi í hausnum á mér þessa dagana hvað þetta varðar.

Febrúar er búinn að vera fáránlega lengi að líða. Samt á þetta að vera stysti mánuður ársins… Í dag er þó 18. febrúar sem þýðir það að besti pabbi minn á afmæli í dag - ekki einu sinni orðinn fimmtugur kallinn :) Eftir fjóra daga mun svo annar af stórviðburðum ársins eiga sér stað, þegar minn heittelskaði smellir sér yfir á fertugsaldurinn ;) Legg ekki meira á ykkur hihi ;)

McBumbos er alltaf jafn hress - bíður eflaust í ofvæni eftir að komast í heiminn eftir sirka sex vikur. Allavega er ég orðin nett spennt yfir komu erfingjans. Ætla að fara á fullt (eins mikið og ég kemst á fullt hehe) í undirbúningi þegar undirbúningi afmælispartýsins er lokið.

Að lokum - vantar einhvern sófasett? ÞARF að losna við sófasettið sem er í barnaherberginu okkar…

Einn á lífi hjá “…”

  1. Jóna skrifaði 18. febrúar 2008 klukkan 23:46 :

    Heyrðu það er bara eitthvað svo bjart yfir manni í þessu góða veðri að maður heldur hreinlega að maður geti sigrað heiminn :D

    Mér finnst febrúar búinn að vera svoooo fljótur að líða… og önnin ef út í það er farið. Ég var að koma úr jólafrí og það eru bara 3 kennsluvikur í páskafrí og eftir það eru bara 3 vikur eftir af mínu 2 ári í HA…Og þá á ég einmitt BARA 3 ár eftir (gott að koma með eitt kaldhæðnisbara í lokin ;) )

    Skelltu þér í skóla stelpa… Það er svo gaman að vera í skóla :) (nema að læra heima, það er leiðinlegt) :P

    Jább… ég bið að heilsa öllum þessum mönnum í lífi þínu, til hamingju með pabba þinn og svo bið ég líka að heilsa móður þinni :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image