…
Talan tíu getur verið rosalega há tala. T.d. þegar maður varð tíu ára - þá fannst manni það nú heldur betur stórafmæli. Að fá tíu í einkunn í skóla er rosalega há einkunn, en í mínu samhengi akkúrat núna er talan tíu alveg rosalega rosalega lág.
Horfðu á alla puttana á þér - þeir eru tíu. Ef þú beygir tvo niður, þá standa eftir átta - sirka ein og hálf hönd. Ef þú beygir síðan aðra tvo niður þá er eftir ein heil hönd og einn putti. Alls ekki svo mikið…
Ég áttaði mig sem sagt á því í morgun að það eru í allra allra mesta lagi 10 vikur í dag þar til við fáum McBumbos í hendurnar… Það er alls ekki langur tími. Sérstaklega þar sem það eru bara 8 vikur (þið munið, ein og hálf hönd) í settan dag. Núh og ef þetta barn er eitthvað að flýta sér, þá skiptir engu þó það komi eftir 6 vikur - það telst samt full meðganga…
Mér finnst hreint ekki svo langt síðan ég sat í útilegustól að króóókna úr kulda 27. júlí sl. og sannfærði tengdapabba minn um að mig langaði hreint ekkert í bjór eða hvítvín. Laumaðist svo í Egils Kristal þegar enginn sá til… enda var mig farið að gruna ýmislegt.
Þetta styttist… og styttist… fjúff hvað ég er farin að hlakka til
Þetta er fljótt að líða, en þú manst dílinn okkar….ekki eiga á milli 2 og 8 apríl
ó - ég hélt að það hefði verið milli 3. og 9. apríl… Ég verð þá bara búin að þessu áður en þú ferð út - ætla helst ekki að ganga mjög langt framyfir
OOOOOOOOOOOOO hvað ég er spennt!!!!!!!!kisskiss
Ooooo Hildur - ég líka
Úff já hvað þetta er fljótt að líða, bara rúmar 6 vikur í þetta hjá mér…þ.e.a.s. ef ég næ 40 vikum. Ef e-ð er að marka “formæður” manns eru nú ekki miklar líkur á því. Hvorki amma, mamma né móðursystur mínar tvær hafa náð 40 vikna meðgöngu. Ekki það að ég væri alveg til í að fá krílið í hendurnar aðeins fyrr en vona þó að ég nái 39 vikum þar sem við ætlum að flytja suður þegar ég verð komin 38 vikur og það væri fínt að fá nokkra daga til að koma sér fyrir í kotinu og þvo barnafötin og svona
Hafðu það gott og njóttu síðustu viknanna með krílið í bumbunni, verðum svo klárlega að taka hitting með börnum þegar þau verða komin í heiminn
úff já Hanna það styttist sko í þetta
Hvert eruð þið að flytja?
Ég býst við því að ná 40v meðgöngu og jafnvel rúmlega það…
Hæ! Takk fyrir innlitið og loppufarið (tíhí)..
Jiminn hvað ég væri til í að eiga þig sem mömmu, pottþétt sú hressasta í bekknum. Gangi ykkur svakalega vel!
Já og til lukku með bumbubúann! En æðislegt og frábært og unaðslegt!
Kveðjur að norðan,
Effdé
Erum að fara að flytja í Hafnarfjörð, í Áslandið. Verðum í lítilli íbúð sem við erum að innrétta í húsinu hjá tengdó. Komin pínu pressa þar sem ástandið núna er þannig að milliveggirnir eru á leið upp og eftir að innrétta eldhúsið og baðið, en það hlýtur að hafast með góðri hjálp
Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, barnið verðuð komið í fangið ykkar áður en þið vitið af, og það verður orðið 4 ára áður en þið vitið af hehe. Hittumst vonandi fljótlega, mig langar svo að finna eitt spark áður en það er tilbúið að koma í heiminn, verðum í bandi
Kv Svana