…
Fimmtudagur, 28. febrúar 2008Svo virðist sem snúningsstraumarnir héðan og þaðan hafi virkað. Allavega staðfesti ljósan það í gær að McBumbos liggur ekki lengur þvert
Hún gat hins vegar ekki vitað hvort barnið er í höfuðstöðu eða sitjandi stöðu, það kemur vonandi í ljós í næstu viku.
Annars er frá því að segja að ég er nú formlega komin í fæðingarorlof. Ég fer sumsé ekki að vinna fyrr en í febrúar á næsta ári. Búin að skila inn læknisvottorði og taka til á borðinu mínu í vinnunni. Þetta er nú alveg pínu skrýtið að vakna þegar Finnur fer í vinnuna til þess eins að fara fram í stofu og leggjast uppí sófa. Ég er því heima og til í alls konar skemmtilegheit ef einhver á lausan tíma whenever ![]()
Eðli málsins samkvæmt er því ekki til mikið efni í bloggfærslu svo ég bið ykkur bara vel að lifa


