…
Í kvöld er ég búin að afreka að baka tvær smákökusortir önnur var ofsalega góð, hin var vond. Í fyrra bakaði ég líka tvær sortir - önnur var ofsalega góð (sú sama og heppnaðist hjá mér þetta árið), hin misheppnaðist algjörlega (ekki sú sama og misheppnaðist núna). Ég held ég sé ekkert spes bakari.
Jólaljósin eru líka komin í gluggana okkar, jólagardínurnar eru komnar upp í eldhúsið og metnaðarfulla föndrið mitt er komið á sinn stað.
Ég er ofsalega lítill föndrari og gjörsamlega óhæf þegar kemur að föndri/prjóni/saumi eða einhverju slíku sem krefst annarra fingra en þumalfingra. Samt hef ég óbilandi metnað og trú á sjálfri mér þegar kemur að jólaskrauti. Ég legg mig virkilega fram við að föndra eitthvað nýtt fyrir hver jól (jólin í ár eru þó undanskilin) og hef ótrúlega gaman að því. Útkoman er ekkert endilega sú fallegasta, en ég tek viljann fyrir verkið hjá sjálfri mér og skreyti heimili mitt með því ![]()
Jólaljós þykja mér þó fallegust af öllu. Birtan af þeim er svo notaleg og þau lýsa skammdegið svo skemmtilega upp. Ég geng nú samt ekki svo langt að föndra jólaljósin mín ![]()
Jólaundirbúningurinn á þessu heimili er þó af skornum skammti þetta árið - en á næsta ári verð ég heimavinnandi húsmóðir í fæðingarorlofi og þá skal ég lofa því að IKEA og Betlehem eiga eftir að blikna í samanburði við íbúðina okkar
Vóvó hvað mín er dugleg
Ég er einmitt að brasast við að undirbúa stelpukvöldið sem ég ætla að hafa annað kvöld… sá fyrir mér að ég gæti gert 2 rétti af 6 í kvöld en svo gleymdi ég að kaupa Stóra Dímon svo ostaveislan verður að bíða morgundagsins
Annað miður skemmtilegt sem ég komst að… ég á ekki þeytara og get því ekki flokkast sem myndarleg húsmóðir… það kom ekkert sérstaklega vel út þegar ég var búin (eða nennti ekki meir) að þeyta eggjarauðrunar saman við flórsykurinn MEÐ GAFFLI!!! Smákökur legg ég sko ekki í og jólaföndur er afar fjarlægt hinum ofursmáu kröfum sem ég geri til myndarskaps hjá sjálfri mér.
Jææææja þetta er sko orðið langt hjá mér!!!
Takk fyrir knúsið sætasta og ég sendi þér eitt ofurmjúkt til baka
sko mér finnst þú sko afar góður föndrari! það sem ég hef séð þig gera er mjög fallegt! en kannski sammála með prjónaskapinn,, hún Margot tók það alveg skýrt fram í gamla daga hahahaha
og ég á heldur engan þeytara
dugnaður hjá þér Lovísa mín
ég er ekki enn búin að hella mér í þessar jólaframkvæmdir en hef mest verið að velta fyrir mér hversu mikið ég eigi að sleppa mér í þessu með litlu dömunni minni - sem er nú orðin nokkuð meðvituð um jól og jólakalla og svo að sjálfsögðu öll ljósin
En … við eigum pottþétt eftir að baka piparkökur og skreyta og punta svo á heimilinu (ég er nefnilega enginn stór bakari heldur hehe )
hvernig gengur svo - kúlan og allt?
Bestu kv. Kitta
Ohh Jóna ég hefði sko verið meira en til í að koma í stelpukvöld hjá þér - ostaveisla hljómar alveg ótrúlega vel
Ég trúi því að eggjarauðuflórsykurþeytingurinn hafi verið jafn pirrandi og þegar við vorum að þeyta rjóma í Svíþjóð með því að hrista hann…
Takk Heiðdís - já Margot blessunin hafði sennilega rétt fyrir sér með prjónaskapinn
Kitta - ég myndi sko sleppa mér all the way. Veit að ég á eftir að gera það á næsta ári þó krílið mitt verði bara 8 mánaða. Kúlan og allt gengur bara stórvel