Æj það er mánudagur í dag - held það hafi ekki farið framhjá neinum. Ég vaknaði ógeðslega þreytt eftir svefnlitla nótt og með bumbu á vörinni. Fjandans frunsa!
En þar sem að ég gat ekki vaknað neitt sérstaklega falleg í morgun, þá ætla ég að deila með ykkur fegrunarráðum frá Audrey Hepburn:
-til að fá fallegar varir skaltu bara hafa eitthvað gott að segja
-til að fá falleg augu skaltu bara svipast um eftir hinu fallega í fólki
-til að hafa fallegar línur skaltu gefa með þér af matnum
-við höfum tvær hendur. Eina til að hjálpa sjálfum okkur og aðra til að rétta hjálparhönd
Eigið góða viku og farið að tína upp jólaskrautið
Þetta eru sko falleg ráð
Allir dagar eru svo sem eins hjá mér þessa dagana..
Vó! Ein sem er ekki að fylgjast með hérna… þú bara bommbommbomm!
Takk fyrir hamingjuóskirnar og hamingjuóskir færð þú sömuleiðis…tvöfaldar meira að segja… til hammó með bumbó og tveggja ára afmælið ef ég man rétt… var það ekki á afmælisdaginn minn sem það allt byrjaði?
Já Heiðdís - ég er sko alveg sammála þér, falleg ráð
Takk Eva María - þú ert með límheila
Ég er greinilega ekki nógu dugleg að kíkka hingað inn og var fyrst að sjá myndirnar af krílinu núna, þetta er svo gaman og spennand
Ég var einmitt alveg vissum að þetta væri stelpa en miðað við spörkin þá er það nú ekkert svakalega stelpulegt, nema þetta sé bara upprennandi fótboltaskvís
*Knús og kossar*
Takk Anna Rut
Ég veit nú ekki með fótboltaskvísu sko, en dansarar þurfa nú ansi mikið að nota fæturnar þannig að eigum við ekki bara að skjóta á það í staðinn