Litla krílið á myndunum hér að neðan blómstrar sem aldrei fyrr og æfir karatespörkin af miklum móð á hverjum degi. Spenningurinn er rosalegur :)

Annars fékk ég afskaplega skemmtilegt símtal í gær. Uppáhalsfrænka mín á Akureyri ætlar að heiðra borgarbúa (og Toys R Us) með nærveru sinni heila helgi í desember og ætlar að fá að njóta hinnar alræmdu gestrisni í Grafarvoginum :) Mér leiðist nú ekki að fá svona heimsóknir :)

Af öðrum spenningi er það að frétta að 27 dagar myndu vera í brottför til Flórída. Visakortin eru nú þegar farin að svitna, enda mun álagið á þau verða gríðarlegt!

Getur samt einhver sagt mér hvaðan þetta “víst að” skrípi kom inn í tungumálið. Tökum dæmi: “Ég kemst ekki í bíó í kvöld víst að ég er orðin veik”. “Ég kemst ekki í bíó í kvöld fyrst að ég er orðin veik” hljómar hins vegar töluvert betur og eðlilegar. Hitt skrípið þarna fer alveg óstjórnlega í taugarnar á mér og fullorðna fólkið er sko engu betri en börnin/unglingarnir þegar kemur að þessu klúðri.

Annars er ég bara nokkuð hress sko ;)

3 færslur hjá “…”

  1. Jóna skrifaði 22. nóvember 2007 klukkan 12:30 :

    Jíííí hlakka til að hitta þig sæta mín :) Hlakka ekkert til að fara í Toys R Us en það er bara ein af þeim skyldum sem maður þarf að gegna sem stór frænka :p

  2. Hildur spildur kúlurass skrifaði 22. nóvember 2007 klukkan 22:05 :

    oooooo en gaman…össs hvað ég væri til í að vera með ykkur þessa helgi, skylst að manni leiðist sjaldan í ykkar félagskap…sérstaklega að símtölunum frá Skövde að dæma….ooo já ég hér með býð mér hér með sjálf í hitting með ykkur 2 snillingunum sem fyrst!!!!

  3. Lovísa skrifaði 23. nóvember 2007 klukkan 10:17 :

    Sömuleiðis Jóna mín - já það eru ýmsar skyldurnar þegar maður er stóra frænka ;)
    Hildur - uuu nei auðvitað leiðist manni ekki í þessum félagsskap ;) Þú ert boðin velkomin í hitting þegar þú vilt :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image