McBumbos á milljón :)
Þá er 20 vikna sónarskoðuninni lokið
Hún kom rosalega vel út, allt á sínum stað og mikill fjörkálfur væntanlegur í heiminn. Allavega átti ljósmóðirin oftar en ekki í erfiðleikum með að ná almennilegum myndum af því sem þurfti að skoða þar sem krílið var sko ekki í fyrirsætustuði í dag
Allt of mikið að gera við að vera á milljón… Gott að einhver sem tilheyrir mínum líkama skuli hreyfa sig… ekki er ég á mikilli hreyfingu ![]()
Ég er ekki frá því að þetta séu sætustu tær í geiminum:

Hér er svo prófíllinn - hendurnar á fullu við andlitið

McBumbos skemmti okkur verðandi foreldrunum svo í gærkvöldi með því að gefa okkur sýnishorn af box- eða fótboltahæfileikum framtíðarinnar og sparkaði svona myndarlega svo það fannst utanfrá ![]()
Það er því eintóm gleði og hamingja í Laufrimanum í dag
Vá flottar myndir
Skemmtilegast í heimi að fara í sónar. Er ekki frá því að ég öfundi þig nú pínku ponsu smá
Bara yndislegt að sjá þetta
- ég fylgist spent með
Bestu kveðjur og knús - Kitta
ps. Svava sem var í E-bekk er nýlega búin að eignast litla dömu
Jíííí hvað þetta er allt saman spennandi
Á maður svo ekki alltaf að giska á hvort kynið þetta er. Fyrst var ég alveg búin að ákveða að þetta væri strákur en núna finnst mér allt í einu eins og þetta sé stelpa… Vinn ég ekki örugglega stóra vinninginn fyrst ég giskaði á bæði
Knúsknús
Takk fyrir kveðjurnar
Já þetta er sko spennandi…
Jóna: Ég held að þetta sé stelpa og jú, þú færð stóra vinninginn
vááááá…við óskar vorum einmitt í gær á sitthvorum staðnum að ráða i þessar dulafullu myndi
Ekkert smá glöð elsku vinkona
dine HILdúa
Pældu í því hvað það eru margir broskallar í kommentunum þínum
Allir yfir sig spenntir yfir litlu skvísunni á myndunum :)Ég brosi allavega út að eyrum þegar ég horfi á þessar kraftaverkamyndir 
Best að bæta aðeins betur í þetta og setja eeeeeiiiinnnn í viðbót
Æðislegt, flottar myndir, já held ég sé sammála því ða þetta sé stelpa. hehe…
Hildur: Þær eru ekkert svo dularfullar
Það er líka hægt að stækka þær með því að smella á myndirnar.
Jóna: Já, mér finnst frábært hvað allir eru eitthvað spenntir yfir þessu. Við erum að sjálfsögðu á yfirsnúningi af spennu og brosum út að eyrum við minnsta tilefni
Takk Svana
OMG!! það er e-ð í bumbunni þinni:
tíhí svo gaman!! ég held að þetta sé verðandi atvinnumaður í knattspyrnu… og jafnvel drengur
knús
Þakka spjallið áðan kæra frænka
Get ekki beðið eftir að sitja í stofunni þinni og rifja upp gamla og góða tíma (do I sound old
???).