Ég hef stundum heyrt talað um að heilinn í óléttum konum minnki - en ég hef aldrei heyrt talað um að hann hreinlega hverfi! Lítum á sólarhring í lífi Lovísu…
Mánudagskvöld eftir vinnu: Ætlaði að skella í þvottavél eftir kvöldmatinn, en hlammaði mér þess í stað beint í sófann eftir fráganginn og svaf þar á mínu græna yfir dagskránni og fattaði morguninn eftir að fötin mín voru ekkert hreinni en þau voru deginum áður. Bað Finn að minna mig á að setja í vél um kvöldið.
Þriðjudagsmorgunn: Hringdi í Salome til að spyrjast fyrir um í hvaða fatastærð Arnar Geir væri þar sem hann býður í afmæli á sunnudaginn. Spjallaði við hana í 5 mín og fékk fatastærðina uppgefna. 20 mín seinna sendi ég Salome sms til að spyrjat fyrir um í hvaða fatastærð Arnar Geir væri - ég hreinlega mundi ekki hvað hún hafði sagt mér.
Þriðjudagshádegi: Linda spyr mig hvort ég hafi ekki örugglega unnið ákveðið verkefni í vinnunni svona en ekki hinsegin (aaallt of langt að fara að útskýra og ykkur kemur það heldur ekkert við). Ég kom alveg af fjöllum svo ég þurfti meiripart gærdagsins í að redda þessu á núll-einni. No harm done þannig, bara leiðinlegt að vinna verkefnin sín ekki alveg rétt.
Þriðjudagsseinnipartur: Ég fór til mömmu og pabba meðan Finnur kláraði að vinna. Þar djókaði ég eitthvað með þessa heilabilun mína og þegar ég var að fara að sækja Finn í vinnuna sagðist ég þurfa að hringja í hann á leiðinni niðreftir svo ég myndi örugglega rata. Eftir að hafa keyrt í 2 mínútur sneri ég við og náði í símann sem ég hafði gleymt hjá mömmu og pabba.
Þriðjudagskvöld: Finnur spurði hvort hann hefði ekki átt að minna mig á eitthvað. Það tók mig nokkrar mínútur að muna hvort ég hefði beðið hann um það og hvað í ósköpunum það hefði þá átt að vera.
Mér finnst merkilegt að ég hafi munað eftir því að fara í föt í morgun þegar ég fór í vinnuna…
HAhahahahaahhahaha…æjj hvað þetta er fyndið, sérstaklega því þetta ert þú!!…sem klikkar sjalda
knuuus
hillapilla
Ég reyndi einusinni að nota þessa afsökun í vinnunni, að heilinn væri að minnka, og yfirmaðurinn minn, sem er þriggja stúlkna faðir sagði strax “já nei, nei heilinn minnkar ekki, en með auknum vökva í líkamanum á meðan á meðgöngu stendur þá eykst þrýstingurinn á ákveðin líffæri þar á meðal heilann…”
Mér fannst allur sjarminn fara af þessari afsökun þannig að ég bakkaði inn í skrifstofuna mína með skottið á milli lappana og reyndi að muna hvað í ósköpunum ég hafði ætlað að spyrja um til að byrja með!!
hehehe þú ert yndi!
En hvenær fær maður svo að sjá bumbumynd?
Hahaha… Þetta er nú ekkert smá fyndi
Ég reyndi einmitt að nota þetta í fjórða bekk sem fyrirfram afsökun ef mér skildi nú ekki ganga vel í prófunum þá væri það ekki mér að kenna heldur væri það einn af fylgikvillum óléttunnar. Sú afsökun var ekki tekin gild mér vitanleg
Hildur: Já - og ekki einn stafur í þessari sögu er ýktur. Þetta er dagsatt!

Elín Björk: Þetta er ekkert skemmtileg útskýring
Heiðdís: Þú verður bara að koma í heimsókn ef þig langar að sjá magann á mér
Anna Rut: Mér finnst að kennarar ættu að taka tillit til þessa fylgikvilla. Þetta er ekkert djók…
HAHAHAHAHA
hahaha…magnað! Ég held að ég megi ekki við því að verða ólétt, heilinn í mér er nógu oft óvirkur þó maður bæti nú ekki ofan á það. Enda er nú svo sem ekkert á dagskránni að ég fari að fjölga mér… nema ef einhleypum verður leyft að gera þetta með tækninni eins og ég las einhversstaðar um daginn. Allavega sér maður akki fram á að þetta gerist með hefðbundnum hætti neitt á næstu árum
Haltu áfram að vera sniðug í óléttunni og ég vona að sónarinn hafi verið góður í dag og krúttið hafi sýnt þér sínar bestu hliðar
Kram :*