Aaaaaalmáttugur! Ef ég væri ekki nú þegar orðin ólétt, þá hefði Sinfóníuhljómsveit Íslands skammast sín í gær þegar eggjastokkarnir mínir tóku eins og eina aríu…

Karen og Gummi eignuðust litla stelpu á föstudaginn og við fórum í heimsókn í gær til að máta hana. Þvíííílíkt og annað eins dúllukrútt hef ég sjaldan séð :) Svo pííínulítil og yndisleg. Var meira að segja svo dugleg að hún vaknaði meðan við vorum í heimsókn svo ég gat fengið að máta :) Ég er ekki frá því að allt þetta óléttu”vesen” sé orðið örlítið meira raunverulegt… maginn á mér er ekkert að stækka af því að ég borða of mikið - það er í alvörunni svona gullmoli þarna inni líka ;)

7 færslur hjá “…”

  1. Jóna skrifaði 12. nóvember 2007 klukkan 11:18 :

    Oooo ég er mjög spennt fyrir þína hönd elsku Lovísa mín :) Vonandi er heilsan góð og allt gengur vel :)

  2. Lovísa skrifaði 12. nóvember 2007 klukkan 12:56 :

    Takk darling :) Heilsan mætti reyndar alveg vera betri, en annað gengur eins og í lygasögu :)

  3. Hjördís skrifaði 12. nóvember 2007 klukkan 15:11 :

    Ohhh þetta er svo gaman. Spennan á bara eftir að aukast meira og meira :) Gangi þér vel

  4. Anna Rut skrifaði 12. nóvember 2007 klukkan 15:36 :

    Æjjj þetta er allt svo skemmtilegt og áður en þú veist af verðuru komin með krílið í fangi ;)

    Hafðu það gott skvísa og ég vona að heilsan fari að batn ;)

  5. Svana skrifaði 12. nóvember 2007 klukkan 22:12 :

    ææ þetta er svo spennandi ég get varla beðið, fór að skoða bleik föt í dag og hugsaði til þín(væri gaman að gefa litla krílinu hennar Lovísu og Finns svona) veit samt ekki afhverju bleik hehe skondið ;)

  6. Heiður skrifaði 14. nóvember 2007 klukkan 14:52 :

    Hæ Lovísa!
    Bara kasta á þig kveðju og kvitta fyrir innlitið. Gangi þér… ég meina, ykkur… svaka vel. Ekkert morgunógleðarbull vina mín!!

  7. Lovísa skrifaði 14. nóvember 2007 klukkan 16:28 :

    Víí takk :) Já, þetta á eftir að verða meira spennandi og líða ótrúlega hratt :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image