Eftir nákvæmlega viku - uppá mínútu - komum við Finnur til með að sitja á biðstofunni á Fósturgreiningardeild að bíða eftir að komast í 20 vikna sónarinn. Sjiiii hvað ég er spennt :) Við ætlum ekki að fá að vita kynið, heldur láta það koma okkur á óvart þegar krílið skríður í heiminn :)

Þetta segir mér það einmitt að meðgangan er að verða hálfnuð! Mér finnst þetta hafa liðið nokkuð hratt bara :) Er líka ekki frá því að það sé einhver farinn að pota í magann á mér innanfrá, þó ekkert massívt svo ég þori ekki að fara með að þetta séu hreyfingar.

Jáh! Og ælupestin frá því í síðustu færslu er bara massív endurkoma morgunógleðinnar. Nú er bara að vona að ég sé ekki að feta í fótspor múttu sem átti víst voða bágt alla níu mánuðina sem hún gekk með mig… Já nei takk!

Framundan er svo Thanksgiving kalkúnn, jólahlaðborð, afmæli, litlu jól familíunnar, jólatónleikar og svo Flóóóórída beijbí ;) Já og inná milli ætla ég að baka jólasmákökur og skrifa á jólakort :)

Já ég veit þetta var bara óléttublogg - sorrý ;) En góða helgi samt :)

4 færslur hjá “…”

  1. Hildur aaa skrifaði 9. nóvember 2007 klukkan 16:24 :

    samhugur í verki…ég er ólétt bara líka! Það er ekki annað hægt í þessari stöðu en þykist bara og vera með! Ég safna bara öðru í mína bumbu! Hahahaha
    Kisskiss

    hildur

  2. Jóna skrifaði 10. nóvember 2007 klukkan 03:45 :

    hehehe ég er sammála Hildi ég er líka að safna öðru í mína bumbu ;) Annars öfunda ég þig af öllu þessu skemmtilega sem er framundan… Ég sé framundan feikmálflutning þar sem drullað verður yfir mig af einhverjum feikdómara, eitthvað Evrópuréttarógeð og svo loksins 6 vikur í faðmi fjölskyldunnar :)Þetta síðastnefnda verður reyndar gott :) En á maður ekki bara að vera feginn því það eru víst því miður ekki allir sem hafa eitthvað að hlakka til :S Maður vill samt alltaf meira og ég vil sól og Florídayl… en sætti mig mjög vel við ylinn frá familíunni :=)

  3. Elín Björk skrifaði 10. nóvember 2007 klukkan 12:11 :

    Hey! Og heimsókn til mín!! Ég er ekki enn búin að sjá þig eftir að óléttan kom í ljós, sem gera bara heilar 9 vikur! eða meira jafnvel…

  4. Heiðdís skrifaði 11. nóvember 2007 klukkan 13:41 :

    látt þér nú batna af “ælupestinni” knús

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image