Súrt síðan í nóvember, 2007

Föstudagur, 30. nóvember 2007

Í kvöld er ég búin að afreka að baka tvær smákökusortir önnur var ofsalega góð, hin var vond. Í fyrra bakaði ég líka tvær sortir - önnur var ofsalega góð (sú sama og heppnaðist hjá mér þetta árið), hin misheppnaðist algjörlega (ekki sú sama og misheppnaðist núna). Ég held ég sé ekkert spes bakari.

Jólaljósin eru líka komin í gluggana okkar, jólagardínurnar eru komnar upp í eldhúsið og metnaðarfulla föndrið mitt er komið á sinn stað.

Ég er ofsalega lítill föndrari og gjörsamlega óhæf þegar kemur að föndri/prjóni/saumi eða einhverju slíku sem krefst annarra fingra en þumalfingra. Samt hef ég óbilandi metnað og trú á sjálfri mér þegar kemur að jólaskrauti. Ég legg mig virkilega fram við að föndra eitthvað nýtt fyrir hver jól (jólin í ár eru þó undanskilin) og hef ótrúlega gaman að því. Útkoman er ekkert endilega sú fallegasta, en ég tek viljann fyrir verkið hjá sjálfri mér og skreyti heimili mitt með því ;)

Jólaljós þykja mér þó fallegust af öllu. Birtan af þeim er svo notaleg og þau lýsa skammdegið svo skemmtilega upp. Ég geng nú samt ekki svo langt að föndra jólaljósin mín ;)

Jólaundirbúningurinn á þessu heimili er þó af skornum skammti þetta árið - en á næsta ári verð ég heimavinnandi húsmóðir í fæðingarorlofi og þá skal ég lofa því að IKEA og Betlehem eiga eftir að blikna í samanburði við íbúðina okkar ;)

Mánudagur, 26. nóvember 2007

Æj það er mánudagur í dag - held það hafi ekki farið framhjá neinum. Ég vaknaði ógeðslega þreytt eftir svefnlitla nótt og með bumbu á vörinni. Fjandans frunsa!

En þar sem að ég gat ekki vaknað neitt sérstaklega falleg í morgun, þá ætla ég að deila með ykkur fegrunarráðum frá Audrey Hepburn:

-til að fá fallegar varir skaltu bara hafa eitthvað gott að segja

-til að fá falleg augu skaltu bara svipast um eftir hinu fallega í fólki

-til að hafa fallegar línur skaltu gefa með þér af matnum

-við höfum tvær hendur. Eina til að hjálpa sjálfum okkur og aðra til að rétta hjálparhönd

Eigið góða viku og farið að tína upp jólaskrautið :)

Fimmtudagur, 22. nóvember 2007

Litla krílið á myndunum hér að neðan blómstrar sem aldrei fyrr og æfir karatespörkin af miklum móð á hverjum degi. Spenningurinn er rosalegur :)

Annars fékk ég afskaplega skemmtilegt símtal í gær. Uppáhalsfrænka mín á Akureyri ætlar að heiðra borgarbúa (og Toys R Us) með nærveru sinni heila helgi í desember og ætlar að fá að njóta hinnar alræmdu gestrisni í Grafarvoginum :) Mér leiðist nú ekki að fá svona heimsóknir :)

Af öðrum spenningi er það að frétta að 27 dagar myndu vera í brottför til Flórída. Visakortin eru nú þegar farin að svitna, enda mun álagið á þau verða gríðarlegt!

Getur samt einhver sagt mér hvaðan þetta “víst að” skrípi kom inn í tungumálið. Tökum dæmi: “Ég kemst ekki í bíó í kvöld víst að ég er orðin veik”. “Ég kemst ekki í bíó í kvöld fyrst að ég er orðin veik” hljómar hins vegar töluvert betur og eðlilegar. Hitt skrípið þarna fer alveg óstjórnlega í taugarnar á mér og fullorðna fólkið er sko engu betri en börnin/unglingarnir þegar kemur að þessu klúðri.

Annars er ég bara nokkuð hress sko ;)

McBumbos á milljón :)

Föstudagur, 16. nóvember 2007

Þá er 20 vikna sónarskoðuninni lokið :) Hún kom rosalega vel út, allt á sínum stað og mikill fjörkálfur væntanlegur í heiminn. Allavega átti ljósmóðirin oftar en ekki í erfiðleikum með að ná almennilegum myndum af því sem þurfti að skoða þar sem krílið var sko ekki í fyrirsætustuði í dag ;) Allt of mikið að gera við að vera á milljón… Gott að einhver sem tilheyrir mínum líkama skuli hreyfa sig… ekki er ég á mikilli hreyfingu ;)

Ég er ekki frá því að þetta séu sætustu tær í geiminum:

20-vikur-mynd1.jpg

Hér er svo prófíllinn - hendurnar á fullu við andlitið

20-vikur-mynd2.jpg

McBumbos skemmti okkur verðandi foreldrunum svo í gærkvöldi með því að gefa okkur sýnishorn af box- eða fótboltahæfileikum framtíðarinnar og sparkaði svona myndarlega svo það fannst utanfrá :)

Það er því eintóm gleði og hamingja í Laufrimanum í dag :)

Miðvikudagur, 14. nóvember 2007

Ég hef stundum heyrt talað um að heilinn í óléttum konum minnki - en ég hef aldrei heyrt talað um að hann hreinlega hverfi! Lítum á sólarhring í lífi Lovísu…

Mánudagskvöld eftir vinnu: Ætlaði að skella í þvottavél eftir kvöldmatinn, en hlammaði mér þess í stað beint í sófann eftir fráganginn og svaf þar á mínu græna yfir dagskránni og fattaði morguninn eftir að fötin mín voru ekkert hreinni en þau voru deginum áður. Bað Finn að minna mig á að setja í vél um kvöldið.

Þriðjudagsmorgunn: Hringdi í Salome til að spyrjast fyrir um í hvaða fatastærð Arnar Geir væri þar sem hann býður í afmæli á sunnudaginn. Spjallaði við hana í 5 mín og fékk fatastærðina uppgefna. 20 mín seinna sendi ég Salome sms til að spyrjat fyrir um í hvaða fatastærð Arnar Geir væri - ég hreinlega mundi ekki hvað hún hafði sagt mér.

 Þriðjudagshádegi: Linda spyr mig hvort ég hafi ekki örugglega unnið ákveðið verkefni í vinnunni svona en ekki hinsegin (aaallt of langt að fara að útskýra og ykkur kemur það heldur ekkert við). Ég kom alveg af fjöllum svo ég þurfti meiripart gærdagsins í að redda þessu á núll-einni. No harm done þannig, bara leiðinlegt að vinna verkefnin sín ekki alveg rétt.

Þriðjudagsseinnipartur: Ég fór til mömmu og pabba meðan Finnur kláraði að vinna. Þar djókaði ég eitthvað með þessa heilabilun mína og þegar ég var að fara að sækja Finn í vinnuna sagðist ég þurfa að hringja í hann á leiðinni niðreftir svo ég myndi örugglega rata. Eftir að hafa keyrt í 2 mínútur sneri ég við og náði í símann sem ég hafði gleymt hjá mömmu og pabba.

Þriðjudagskvöld: Finnur spurði hvort hann hefði ekki átt að minna mig á eitthvað. Það tók mig nokkrar mínútur að muna hvort ég hefði beðið hann um það og hvað í ósköpunum það hefði þá átt að vera.

Mér finnst merkilegt að ég hafi munað eftir því að fara í föt í morgun þegar ég fór í vinnuna…

Mánudagur, 12. nóvember 2007

Aaaaaalmáttugur! Ef ég væri ekki nú þegar orðin ólétt, þá hefði Sinfóníuhljómsveit Íslands skammast sín í gær þegar eggjastokkarnir mínir tóku eins og eina aríu…

Karen og Gummi eignuðust litla stelpu á föstudaginn og við fórum í heimsókn í gær til að máta hana. Þvíííílíkt og annað eins dúllukrútt hef ég sjaldan séð :) Svo pííínulítil og yndisleg. Var meira að segja svo dugleg að hún vaknaði meðan við vorum í heimsókn svo ég gat fengið að máta :) Ég er ekki frá því að allt þetta óléttu”vesen” sé orðið örlítið meira raunverulegt… maginn á mér er ekkert að stækka af því að ég borða of mikið - það er í alvörunni svona gullmoli þarna inni líka ;)

Föstudagur, 9. nóvember 2007

Eftir nákvæmlega viku - uppá mínútu - komum við Finnur til með að sitja á biðstofunni á Fósturgreiningardeild að bíða eftir að komast í 20 vikna sónarinn. Sjiiii hvað ég er spennt :) Við ætlum ekki að fá að vita kynið, heldur láta það koma okkur á óvart þegar krílið skríður í heiminn :)

Þetta segir mér það einmitt að meðgangan er að verða hálfnuð! Mér finnst þetta hafa liðið nokkuð hratt bara :) Er líka ekki frá því að það sé einhver farinn að pota í magann á mér innanfrá, þó ekkert massívt svo ég þori ekki að fara með að þetta séu hreyfingar.

Jáh! Og ælupestin frá því í síðustu færslu er bara massív endurkoma morgunógleðinnar. Nú er bara að vona að ég sé ekki að feta í fótspor múttu sem átti víst voða bágt alla níu mánuðina sem hún gekk með mig… Já nei takk!

Framundan er svo Thanksgiving kalkúnn, jólahlaðborð, afmæli, litlu jól familíunnar, jólatónleikar og svo Flóóóórída beijbí ;) Já og inná milli ætla ég að baka jólasmákökur og skrifa á jólakort :)

Já ég veit þetta var bara óléttublogg - sorrý ;) En góða helgi samt :)

Þriðjudagur, 6. nóvember 2007

Þegar maður er óléttur er dáldið erfitt að vita hvort maður er heima með ælupest eða massíva morgunógleði… Ég er allavega ekki viss núna, eina sem ég veit er að mér líður bölvanlega!

Eins gott að það sé eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu í dag - efast um að ég geri nokkuð annað en að glápa á imbann. ojjjj ég nennessekkki :(