…
Sko… ég elska alveg jólin og allt það. En ég elska ekki að þurfa að vera á ferðinni í veðrinu sem fylgir jólaárstíðinni. Finnst líka voða kósý að horfa á þetta útum gluggann eða fara útí göngutúr í svona veðri, en meðan bíllinn minn er bara í sandölum, þá langar mig ekkert að leika við hann. Ekki fyrr en hann er kominn á bomsurnar.
Er annars nokkuð ánægð með að hafa þó verið skrefi á undan mr. Winter, þegar ég keypti mér ó svo fallega og góða kápu í gær og get því alveg farið út án þess að krókna úr kulda. Og það sem meira og betra er, kápan er einmitt þannig gerð að hún kemur til með að passa utan um ört stækkandi maga, svo hvorki mér né bebis þarf að vera kalt í vetur ![]()
Þessa dagana lít ég einmitt út fyrir að vera ægileg dama. Líður nebblilega langbest í pilsi og sokkabuxum (og ég er ekkert að grínast með að sokkabuxurnar sem ég keypti um helgina, ná upp yfir axlir) og kýs þann klæðnað fram yfir buxur. Suma daga nenni ég þó ekki að pjattast og langar mest að fara í stuttermabol og joggingpeysu við pilsið mitt… eitthvað sem segir mér að það hitti ekki alveg í mark
Hmm og ef að útí það er farið, þá langar mig suma daga mest að vera bara í sokkabuxunum, eeeen sleppi því, vinnufélaganna vegna ![]()
Krossaputtaþartilámorgun - vilt þú líka krossaputtaþartilámorgun? Bara fyrir mig ![]()
Gleðilegan vetur
Ég krossa putta fyrir þig… en veit samt ekki af hverju… geri það bara
Mér finnst gott að vera í pilsi eða í kjól kannski bara….Það fer bara því miður mjög lítið fyrir þannig klæðnaði í fataskápnum mínum þessa dagana
Hafið það gott öll þrjú og ekki láta harðan Reykajvíkurveturinn skemma fyrir þér jólastemmarann
Hér er allt bara autt og fínt… bílíf it or not!
HAHAHA… Það er byrjað að snjóa!!! Fyrsti alvöru snjórinn en fröken Mazda er komin í bomsurnar svo ég get vonandi keyrt um göturnar eins og ekkert hafi í skorist… Þ.e.a.s. ef það var ekki lögreglumaður sem hringdi í mig í gær dulbúinn sem spurningastrákur frá Gallup að spyrja hvort ég færi eftir umferðarlögunum…
hehehe
Hefurðu heyrt orðatiltækið “don´t jinx it” híhí
ég krossa putta
Ég krossa líka putta, þó ég viti ekkert af hverj
En já ég held að stóóóórar sokkabuxur og pils sé besti óléttuklæðnaðurinn, allavega fannst mér það lík
Halló, halló. Ég er svona af-og-til lesandi, kíki svona af og til…
www.gymboree.com
Til lukku með bumbunakrílið, bumbusystir, ég á von á mér rétt fyrir páska!
Smá hint fyrir Flórida, kíktu í búð sem heitir Gymboree - þar eru til alveg hrikalega, æðislega æðisleg barnaföt
Bestu kveðjur,
Freyja Rut, Króksari og kennari með kúlu
Takk fyrir puttakrossið stelpur - vona að það sé að virka
Nei hæ Freyja
Gaman að sjá þig hér og til hamingju sömuleiðis með innipúkann þinn
Takk fyrir hintið - búin að kíkja á heimasíðuna og þau eru æ ð i
Verð ég ekki líka þá að krossa puttana

Takk fyrir hittinginn sæta…bjargaði alveg deginum
Panta annan svona hitting áður en daman lætur sjá sig.