…
Ég get ekki sagt að heimskulegasta fjárfestingin (ef hægt er að tala um fjárfestingu fyrir 1500 kall) á þessu heimili sé fjarstartið í bílinn okkar. Ég leit útum gluggann í morgun þegar ég skreið undan sænginni og sá einhverjar hvítar flygsur fljúga úti. Náði í bíllykilinn og ýtti á start og 10 mín. síðar sátum við í heitum bílnum á leiðinni í vinnuna ![]()
Svo er líka föstudagur í dag. Alveg einstaklega ljúft
Vinnuvikan að klárast, nægur tími til að sofa næstu tvo daga (já ég er svefndýr þessa dagana) og síðast en ekki síst á ég frí í eldhúsinu á föstudagskvöldum - þá tekur Finnur við… að einhverju leyti
Jáh og svo kemur laugardagur eftir föstudeginum og þá ætlum við Solla að skella okkur á konukvöld Vodafone - pant vinna alla flottu happdrættisvinningana ![]()
Í dag eru einmitt líka 37 vinnudagar í brottför til Flórída, og ef við teljum helgarnar með, þá eru dagarnir 54
Spennt? Nei af hverju haldið þið það? ![]()
Góða helgi!
Ohhh ég verð að fá mér svona fjarstart… Kostar það virkilega ekki meira en 1500 kall. Ég hlýt að vera að lesa eitthvað vitlaust hérna??!!?
Annars eru engar hvítar flygsnur hérna… en það hlýtur að koma að því bráðlega að veturinn komi á Akureyri, þetta er orðið frekar óeðlilegt ástand hérna.
hehe jú Jóna - ætli verðið sé ekki sirka 20-30þús með ísetningunni… En þegar maður þekkir fólk sem fór til Bandaríkjanna og býr með snjöllum rafeindavirkja, þá kostar þetta 1500 kall
Engin snjókoma niðrí bæ þegar ég vaknaði… Þurfti ekki einu sinni að skafa rúðuna
Eigðu góða helgi og ég hringi örugglega í þig!
Djös verður gaman hjá okkur
vinnum allt og keilum eins og fávitar LOL