Jæja snúðarnir mínir… Er eitthvað ótrúlega andlaus þessa dagana. Gæti samt sagt ykkur ýmislegt skemmtilegt…

Eins og t.d…

að sautjánda vika meðgöngunnar er hafin - þetta kríli verður komið í hendurnar á okkur áður en við vitum af.

að það eru 62 dagar í brottför til Flórída og farið að ískra í fólki af spenningi

að ég sá jólavörur í Hagkaup í gær og það er verið að rýma hillur fyrir enn fleiri jólavörum. Það þýðir að ég má fljótlega fara að hlusta á jólalög, án þess að einhver böggi mig ;)

að ég er ofsalega ánægð með kommentafjöldann við síðustu tvær færslur :)

4 færslur hjá “”

  1. Heiðdís skrifaði 18. október 2007 klukkan 17:47 :

    Gavöööð hvað tíminn er fljótur að liða og ég get ekki beðið eftir að fá að knúsa krílið, en þangað til knúsa ég bara þig ;)
    Sammála með jólin, hlakka svakalega til að fara að hlusta á jólalög og skrifa jólakor :)

    VERÐUM svo að fara að hittast!

  2. Jóna skrifaði 18. október 2007 klukkan 20:15 :

    Heyrðu eigum við þá ekki bara að reyna að halda þessum kommentafjölda áfram :) Lov jú og þúsund þakkir fyrir hjálpina um daginn… hægt að lesa um það á bloggsíðu viðkomandi á mæspeisinu en henni fannst þetta svo ótrúlegt að hún hélt að ég hefði sambönd við MÍ ;)

  3. Lovísa skrifaði 19. október 2007 klukkan 13:39 :

    híhí já Heiðdís, það styttist í að þú verðir “frænka” hehe ;)
    Minnsta málið Jóna, getur samt bent vinkonu þinni á að Ogvodafone hefur ekki verið til í rúmt ár. Hún er hins vegar viðskiptavinur Vodafone ;)

  4. Svana skrifaði 23. október 2007 klukkan 16:28 :

    Já ég er sko sammála Heiðdísi, tíminn er sko fljótur að líða og ég get varla beðið eftir að krílið komi í heiminn, svooooo spennandi
    Kossar og knú :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image