TAKK :)
Vá! Þúsund þakkir allir fyrir kveðjurnar og hamingjuóskirnar
Ekki leiðinlegt að fá svona viðbrögð
Jú, þetta verða töluverðar breytingar, en spenningurinn nær sko alveg yfirhöndinni og tilhlökkunin er gríðarleg. Nú er bara spurning hvað okkur tekst að halda að okkur höndum í búðunum í Flórída í desember
Eitthvað sem segir mér að það verði pííínu erfitt ![]()
Líðanin hefur verið þokkaleg - hef af og til verið alveg viðbjóðslega slöpp og morgunógleði myndi ekki vera rétta orðið, meira svona sólarhringsógleði. En ég svaf þetta nú mikið til af mér, enda hálfpartinn legið í dvala síðustu vikurnar. Ég er samt öll að hressast og loksins orðin tilbúin í eitthvað annað en sófasof eftir vinnudaginn ![]()
En þetta er nú ekki eina tilhlökkunin - í dag myndu einmitt vera 77 dagar í brottför til Flórída
Þó ég komi ekki til með að hanga á sundlaugarbakkanum með litríkan kokteil í annarri, eða í rússíbönum, þá verður þetta samt algjör snilldarferð. Stemningin er allavega rosaleg og litagleðin í húsinu sem við verðum í er slík, að ef manni fer að leiðast, þá labbar maður bara inní næsta herbergi og deyr úr hlátri yfir stórkostlegri litagleði ![]()
Eins og þið sjáið - bara gaman að vera ég
Gaman að fá fréttir kæra óléttubína
Ég hlakka einmitt til að fara í jólafrí (er það ekki annars alveg að skella á
)
Kisses….
jiiiidúúúúúúdddda mía þetta er allt svo spennandi!!!!
Júts - það er sko alveg að koma jólafrí
Langaði bara að óska þér innilega til hamingju með bumbubúann þinn…
Kveðja úr sveitinni
Knús og kossar
Takk Helga mín
Jiiii, ég ráfaði inn á síðuna þína alveg óvart og mátti til með að óska þér til hamingju elsku Lovísa mí
Hlakka til að sjá þig á næsta reunion
og vonandi fyr
Hafðu það gott
Kv. frá Akureyri
Íris
Takk Íris
Ég er alltaf fyrst með fréttirna
til hamingju elsku Lovísa og Finnur með litla krílið ykka 
Kær kveðja Nanna panna
híhí takk Nanna
Ó
MÆ
GOD!!!!!
ERTU PREGGÓ!!!!!!
Æðislega til hamingju með það!! Frábært frábært frábært. Ég veit ekki hver gæti orðið betri mamma en þú
En hey, hvar á flórída verðuru um jólin? Ég nebbla flýg til orlando 28 des sirka og verð fram yfir áramót og keyri þá yfir til Alabam
Við kannski sjáumst í disneyworld haha
Takk Hrafnhildur
Við gerum okkar besta í foreldrahlutverkinu - sjáumst í Disney
Innilega til hamingju Lovísa (og Finnur auðvitað líka :)). Vonandi hræddi ég þig ekki um of með þessu óléttublaðri í mér á síðunni minni ;). Meðgöngur eru jafn misjafnar og þær eru margar. Hvet þig til að fara í meðgöngujóga og sund.. það er eitthvað sem ég hefði mátt vera duglegri að gera!
En innilega til hamingju.
Kossar,
Ilmur.
Til hamingju með tilvonandi erfingj
Frábært þið stórar og mikla hamingju óskir frá Kaupmannahöfn
Takk takk takk
Og nei Ilmur, þú hræddir mig ekki neitt
Þú gerir þér ekki grein fyrir því hversu illilega þú bjargaðir geðheilsu okkar núna vinkona! Ef ég hefði þurft að sitja hér og læra í allt kvöld án þess að hafa orðabókina mína og án þess að geta svindlað mér aðeins á netið þá hefði lífi mínu líklega verið lokið um miðnætti. Þúsund kossar og knús til ykkar skötuhjúa…
NonnononnoH! Innilega til hamingju elsku Lovísa!!
Nenniru samt að updatea mig um allt sem gerðist áður en þú varð ófrísk? Finnst þetta nú bara eins og að fá blauta tusku í andlitið!?! Er það kannski bara af því að þú skiptir um blogg og ég fylgdist ekki nógu vel með og allt þetta er á eigin ábyrgð??
Jú, líklegast er það þannig. En ennþá fleiri hamingjuóskir og kossar og knús. Mæli með að stelpan verði nefnd Elsa. Það er vinsælt í dag, ég sverða! Tilvonandi tískunafn, og um að gera að vera fyrst til að koma tískubylgunni af stað
Nú er þetta lengsta komment ever, spurning um að senda þér bara email kannski?!?
Ástarkveðjur úr Bergen, þar sem sólin meira að segja skín í dag!