Súrt síðan í október, 2007

Mánudagur, 29. október 2007

Sko… ég elska alveg jólin og allt það. En ég elska ekki að þurfa að vera á ferðinni í veðrinu sem fylgir jólaárstíðinni. Finnst líka voða kósý að horfa á þetta útum gluggann eða fara útí göngutúr í svona veðri, en meðan bíllinn minn er bara í sandölum, þá langar mig ekkert að leika við hann. Ekki fyrr en hann er kominn á bomsurnar.

Er annars nokkuð ánægð með að hafa þó verið skrefi á undan mr. Winter, þegar ég keypti mér ó svo fallega og góða kápu í gær og get því alveg farið út án þess að krókna úr kulda. Og það sem meira og betra er, kápan er einmitt þannig gerð að hún kemur til með að passa utan um ört stækkandi maga, svo hvorki mér né bebis þarf að vera kalt í vetur :)

Þessa dagana lít ég einmitt út fyrir að vera ægileg dama. Líður nebblilega langbest í pilsi og sokkabuxum (og ég er ekkert að grínast með að sokkabuxurnar sem ég keypti um helgina, ná upp yfir axlir) og kýs þann klæðnað fram yfir buxur. Suma daga nenni ég þó ekki að pjattast og langar mest að fara í stuttermabol og joggingpeysu við pilsið mitt… eitthvað sem segir mér að það hitti ekki alveg í mark ;) Hmm og ef að útí það er farið, þá langar mig suma daga mest að vera bara í sokkabuxunum, eeeen sleppi því, vinnufélaganna vegna ;)

Krossaputtaþartilámorgun - vilt þú líka krossaputtaþartilámorgun? Bara fyrir mig :)

Gleðilegan vetur :)

Föstudagur, 26. október 2007

Ég get ekki sagt að heimskulegasta fjárfestingin (ef hægt er að tala um fjárfestingu fyrir 1500 kall) á þessu heimili sé fjarstartið í bílinn okkar. Ég leit útum gluggann í morgun þegar ég skreið undan sænginni og sá einhverjar hvítar flygsur fljúga úti. Náði í bíllykilinn og ýtti á start og 10 mín. síðar sátum við í heitum bílnum á leiðinni í vinnuna :)

Svo er líka föstudagur í dag. Alveg einstaklega ljúft :) Vinnuvikan að klárast, nægur tími til að sofa næstu tvo daga (já ég er svefndýr þessa dagana) og síðast en ekki síst á ég frí í eldhúsinu á föstudagskvöldum - þá tekur Finnur við… að einhverju leyti ;) Jáh og svo kemur laugardagur eftir föstudeginum og þá ætlum við Solla að skella okkur á konukvöld Vodafone - pant vinna alla flottu happdrættisvinningana ;)

Í dag eru einmitt líka 37 vinnudagar í brottför til Flórída, og ef við teljum helgarnar með, þá eru dagarnir 54 :) Spennt? Nei af hverju haldið þið það? ;)

Góða helgi!

Fimmtudagur, 18. október 2007

Jæja snúðarnir mínir… Er eitthvað ótrúlega andlaus þessa dagana. Gæti samt sagt ykkur ýmislegt skemmtilegt…

Eins og t.d…

að sautjánda vika meðgöngunnar er hafin - þetta kríli verður komið í hendurnar á okkur áður en við vitum af.

að það eru 62 dagar í brottför til Flórída og farið að ískra í fólki af spenningi

að ég sá jólavörur í Hagkaup í gær og það er verið að rýma hillur fyrir enn fleiri jólavörum. Það þýðir að ég má fljótlega fara að hlusta á jólalög, án þess að einhver böggi mig ;)

að ég er ofsalega ánægð með kommentafjöldann við síðustu tvær færslur :)

TAKK :)

Miðvikudagur, 3. október 2007

Vá! Þúsund þakkir allir fyrir kveðjurnar og hamingjuóskirnar :) Ekki leiðinlegt að fá svona viðbrögð :) Jú, þetta verða töluverðar breytingar, en spenningurinn nær sko alveg yfirhöndinni og tilhlökkunin er gríðarleg. Nú er bara spurning hvað okkur tekst að halda að okkur höndum í búðunum í Flórída í desember ;) Eitthvað sem segir mér að það verði pííínu erfitt :)

Líðanin hefur verið þokkaleg - hef af og til verið alveg viðbjóðslega slöpp og morgunógleði myndi ekki vera rétta orðið, meira svona sólarhringsógleði. En ég svaf þetta nú mikið til af mér, enda hálfpartinn legið í dvala síðustu vikurnar. Ég er samt öll að hressast og loksins orðin tilbúin í eitthvað annað en sófasof eftir vinnudaginn :)

En þetta er nú ekki eina tilhlökkunin - í dag myndu einmitt vera 77 dagar í brottför til Flórída :) Þó ég komi ekki til með að hanga á sundlaugarbakkanum með litríkan kokteil í annarri, eða í rússíbönum, þá verður þetta samt algjör snilldarferð. Stemningin er allavega rosaleg og litagleðin í húsinu sem við verðum í er slík, að ef manni fer að leiðast, þá labbar maður bara inní næsta herbergi og deyr úr hlátri yfir stórkostlegri litagleði ;)

Eins og þið sjáið - bara gaman að vera ég :)