Ég er svo heppin að vinna þannig vinnu að stundum get ég bara stungið headphones í eyrun og hlustað á þá tónlist sem mig langar. Setti playlistann á random og lag númer 54 er lagið Hedonism með þeirri geðþekku hljómsveit Skunk Anansie…

Þá rifjaðist nú upp fyrir mér að ég hef gerst svo fræg að fara á tónleika með þessari hljómsveit. Varla hafa þeir verið mjög frábærir því ég get ekki með nokkru móti munað hvernig stemning var á tónleikunum né heldur með hverjum ég fór… Kannast einhver við það að hafa farið með mér á tónleika með Skunk Anansie?

Man samt að miðarnir voru keyptir fyrir mig í Bókval á Akureyri og gott ef tónleikarnir voru ekki í Laugardalshöllinni… Fleira man ég eiginlega ekki ;)

Ástæða minnisleysisins getur ekki hafa verið áfengisdrykkja því það er klárt mál að þessir tónleikar hafa verið löngu áður en ég fór að hafa vit á því að sulla í svoleiðis…

6 færslur hjá “…”

  1. Heiðdís skrifaði 5. september 2007 klukkan 12:42 :

    það er naumast hvað maður er ómerkilegur.. ég fór með þér og stemmarinn var mjög góður. svo gistum við hjá Svönu í Stelkshólunum og það var ekki lítið skemmtilegt. man reyndar ekki hvernig við fórum í bæinn. Minnir að ég hafi farið með Pálma og þú hafir farið með flugi.

    En ég man eftir tónleikunum og við vorum sko ekkert undir áhrifum neins!

  2. Heiðdís skrifaði 5. september 2007 klukkan 12:43 :

    PS. Ég man sérstaklega hvað við vorum spenntar þegar við fengum miðana austur. Þetta voru að ég held fyrstu “alvöru” tónleikarnir okkar :)

  3. Lovísa skrifaði 5. september 2007 klukkan 13:51 :

    híhí - mig minnti það einmitt að þú hefðir verið með í för, var samt ekki alveg viss ;) Og jú, ég man eftir miðakaupunum og að það voru keyptir tveir miðar en öðru man ég barasta varla eftir - meira hvað ellin hellist yfir mann ;)

  4. Svana skrifaði 6. september 2007 klukkan 10:25 :

    Held meira að segja að ég hafi farið líka með ykkur dömur mínar. Og já við gistum allar heima hjá mér í stelkshólunum. Ávallt fjör hjá okkur ekki satt hehehe

  5. KSvava skrifaði 6. september 2007 klukkan 13:30 :

    Nú fór ég ekki með þér en ég fór og verð að segja það sama, man voðalega lítið eftir þeim, samt dýrkaði ég þessa hljómsveit á sínum tíma, stóð framanlega við sviðið og meira man ég ekki :)

  6. Heiðdís skrifaði 19. september 2007 klukkan 00:26 :

    sælar! var að spá í hvort þú myndir kippa kaffivélinni með þér til Svönu á morgun?
    knús

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image