Súrt síðan í september, 2007

Föstudagur, 21. september 2007

Í gærkvöldi skelltum við Finnur okkur í bíó - það hefur ekki gerst síðan síðasta sumar ;) Myndin Knocked up varð fyrir valinu og mæli ég eindregið með henni, sérstaklega ef þú ert “knocked up”. Allavega fékk ég nokkrum sinnum flashback frá síðustu vikum á meðan myndin rúllaði - og núna gat ég hlegið, þó ég hafi ekki getað það þá ;)

Það er allavega ljóst að 02.04.08 mun vera gríðarlegur gleðidagur í okkar lífi, það er að segja ef sumir eru jafn tímanlega og akkúrat í þessu og ég var ;)

11-vikur-single.JPG 

Óska ykkur góðrar helgar :)

Þriðjudagur, 4. september 2007

Ég er svo heppin að vinna þannig vinnu að stundum get ég bara stungið headphones í eyrun og hlustað á þá tónlist sem mig langar. Setti playlistann á random og lag númer 54 er lagið Hedonism með þeirri geðþekku hljómsveit Skunk Anansie…

Þá rifjaðist nú upp fyrir mér að ég hef gerst svo fræg að fara á tónleika með þessari hljómsveit. Varla hafa þeir verið mjög frábærir því ég get ekki með nokkru móti munað hvernig stemning var á tónleikunum né heldur með hverjum ég fór… Kannast einhver við það að hafa farið með mér á tónleika með Skunk Anansie?

Man samt að miðarnir voru keyptir fyrir mig í Bókval á Akureyri og gott ef tónleikarnir voru ekki í Laugardalshöllinni… Fleira man ég eiginlega ekki ;)

Ástæða minnisleysisins getur ekki hafa verið áfengisdrykkja því það er klárt mál að þessir tónleikar hafa verið löngu áður en ég fór að hafa vit á því að sulla í svoleiðis…