Í dag myndu vera tíu ár síðan Díana prinsessa dó… það var einmitt einhver umræða hér áðan - manstu hvar þú varst þegar þú fékkst fréttirnar? Ég man t.d. að ég var í Reykjavík í heimsókn hjá Svönu minni, gisti á dýnu á gólfinu og við vorum að rumska um það leyti sem fréttirnar bárust og fannst þetta alveg hrikalegt.

Annars er Rúdolf mættur aftur í vinnuna - jább, búin að vera lasin heima í tvo daga með stórkostlega haustflensu. Hrikalega leiðinlegt að hanga svona lasinn heima hjá sér, fannst samt ekkert leiðinlegt að uppáhaldsuppáhaldið mitt skyldi vorkenna mér svo mikið að hann gaf mér pakka í gær affí að ég var svo mikill slappihaus :) Gott að eiga góða að ;)

Flöskudagur í dag - kvöldið verður tekið í óhollustu- vídeókvöld hjá okkur systkinunum þar sem ma og pa stungu Eyþór af til útlanda og Finnur hefur titil að verja í golfmóti Vodafone, svo við systkinin ætlum bara að hafa það kóóós :)

Góða helgi!

3 færslur hjá “…”

  1. Solla Voda skrifaði 31. ágúst 2007 klukkan 14:39 :

    Ég man hvar ég var þegar hún dó var hjá foreldrum fólksins sem ég var au pair hjá útí í Englandi í BATH. SHit mamma kallsins sem ég vann hjá kom hlaupandi inn í herbergi þar sem ég og vinkona mín steinsváfum alveg í RUSLI. Hræðilegur dagur og svakalegt að upplifa hann í hennar heimalandi

  2. Lovísa skrifaði 1. september 2007 klukkan 12:17 :

    Já ég skal trúa því að það hafi verið dáldið annað að upplifa þetta þar heldur en hér heima ;)

  3. Eydís Huld skrifaði 1. september 2007 klukkan 15:40 :

    hey ég man líka hvar ég var. ég var í partý í Njarðvík. en ég er að fatta það núna að þetta hefur greinilega verið EFTIRpartý fyrst þið voruð að “rumska”. hmm það getur nú svo sem vel verið, mar var svo agalega villtur back in the day; ;)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image