…
Föstudagur, 31. ágúst 2007Í dag myndu vera tíu ár síðan Díana prinsessa dó… það var einmitt einhver umræða hér áðan - manstu hvar þú varst þegar þú fékkst fréttirnar? Ég man t.d. að ég var í Reykjavík í heimsókn hjá Svönu minni, gisti á dýnu á gólfinu og við vorum að rumska um það leyti sem fréttirnar bárust og fannst þetta alveg hrikalegt.
Annars er Rúdolf mættur aftur í vinnuna - jább, búin að vera lasin heima í tvo daga með stórkostlega haustflensu. Hrikalega leiðinlegt að hanga svona lasinn heima hjá sér, fannst samt ekkert leiðinlegt að uppáhaldsuppáhaldið mitt skyldi vorkenna mér svo mikið að hann gaf mér pakka í gær affí að ég var svo mikill slappihaus
Gott að eiga góða að ![]()
Flöskudagur í dag - kvöldið verður tekið í óhollustu- vídeókvöld hjá okkur systkinunum þar sem ma og pa stungu Eyþór af til útlanda og Finnur hefur titil að verja í golfmóti Vodafone, svo við systkinin ætlum bara að hafa það kóóós ![]()
Góða helgi!


