Hæ, hó jibbí og allt það

Slapp sem betur fer við það að fara niðrí bæ á þessum merka degi. Ákvað að vera í fýlu við hann þar sem hann þurfti að bera uppá helgi, en ekki vinnudegi svo maður gæti náð sér í aukafrídag. Var gríðarlega fegin að losna við börn í sykursjokki með kandífloss og sleikjósnuð, gargandi á eftir helíumblöðrunni sem fór of langt uppí loftið. Þjóðerniskenndin alveg að fara með mig, ég veit ;) Ákvað bara að taka þjóðerniskenndina út yfir leiknum Ísland-Serbía í staðinn. Hólímólí, ég var alveg hoppandi uppúr sófanum á milli þess sem ég gargaði eins og krakki sem tapaði helíumblöðrunni sinni. Fjúff hvað þetta var spennandi. En að sjálfsögðu unnu “strákarnir okkar” þetta ;)

Mikið djöfull væri ég til í að vera jafn þrælskyggn og gaurinn sem er að lýsa golfinu í sjónvarpinu (já, það er jafn óspennandi og það hljómar). “Tiger lítur á skortöfluna og er mjög svekktur, hefði viljað gera betur“. Magnað alveg hvað hann er naskur á líðan spilaranna þarna…

Fimm vinnudagar eftir í sumarfrí - getiggi beeeeeeðið :)

5 færslur hjá “Hæ, hó jibbí og allt það”

  1. Heiðdís skrifaði 18. júní 2007 klukkan 01:26 :

    mín bara orðin húkkt á íþróttarásinni… hehehe ;)

  2. Lovísa skrifaði 18. júní 2007 klukkan 14:05 :

    hehehe - neee myndi nú seint segja það. Deili hins vegar heimili með manni sem leiðist ekkert að horfa á íþróttir ;)

  3. Einar Logi skrifaði 19. júní 2007 klukkan 16:02 :

    Hæ, magnað attitude í garð 17. júní… ekki spáði ég mikið í að dagsetninguna, enda kanski ekki mikið sem minnir mann á klakann hérna úti.
    Takk fyrir hamingjuóskirnar og gleðilegt sumar sömuleiðis.
    ps. ég skammaðist mín pínu þegar ég las færsluna um greininn á nöfnin okkar.. ég á t.d. myspace síðu sem slóðin á er myspace.com/einarloginn ;) En það var ekkert laust sem ég ætlaði að nota…

  4. Ilmur skrifaði 20. júní 2007 klukkan 08:24 :

    Oh ég var svo guðslifandi fegin að sleppa við 17. júní fárið í borginni og vera bara hér í sælunni að skúra! Já, allt skárra en þessi sykursjokkeruðu börn í milljónatali.. liggur við.

    En jæja, 4 dagar í sumarfrí hjá þér stelpa! Hvað á svo að gera í fríinu? Kíkja vestur, jaá, þarna þekki ég þig :). haha..

    kv. úr sælunni í Bolungarvík.
    Ilmur

  5. Lovísa skrifaði 20. júní 2007 klukkan 10:50 :

    Einar Logi - hehe já ég var hressur þarna á sunnudagskvöldið greinilega ;) Held það sé engin ástæða til að skammast sín fyrir að setja greini fyrir aftan nafnið sitt - ég er kannski bara sú eina sem fatta þetta ekki ;)

    Ilmur - fríið mun einkennast af golfi, afslappelsi, golfi, góðu veðri, golfi, hvítvíni, golfi, sumarbústað og einhverju slíku. En kíkja vestur - njah, ekki þetta sumarið :)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image