Ormar og pöddur

Ég er með eins lítið “græna fingur” og hægt er. Þess vegna gladdist ég ekkert sérstaklega þegar kom að lóðardegi hússins nú um helgina. Gríðarleg þátttaka eða hitt þó heldur. Það voru sem sagt heilar þrjár íbúðir sem sáu sér fært að mæta. Algjör viðbjóður að reita arfa og mæta alls konar lífríki þarna undir. Ekki alveg minn tebolli.

 Svo kíktum við aðeins í Bása þar sem hæfileikar mínir komu bersýnilega í ljós. Held það sé næsta mál á dagskrá að fá sér golfkennara í eins og einn klukkutíma eða svo… Er að gera sirka milljón vitleysur í hverju höggi, það væri ágætt að fækka þeim um helming eða svo ;)

Það er svo eitt sem mér finnst alveg óóóskaplega hallærislegt og er búið að þykja hallærislegt í dáldið langan tíma. Skil ekki áráttuna hjá fólki að bæta greini aftan við nöfn og tala um sjálfa/n sig í þriðju persónu. Tökum sem dæmi týpíska bloggfærslu “…Ég var búin að bíða mjög lengi eftir því að Jóinn mætti á svæðið. Siggan þolir ekki svona seinagang svo stelpan fór bara ein út á lífið.” Ég fæ kjánahroll yfir svona málfari.

Næstsíðasta vinnuvikan fyrir sumarfrí er svo hafin :)

3 færslur hjá “Ormar og pöddur”

  1. Anna Rut skrifaði 11. júní 2007 klukkan 14:00 :

    Er virkilega hægt að gera milljón vitleysur í einu höggi, þetta virkar so einfalt, sveifla og slá…hihhih:p Þetta getur mar sagt þegar mar hefur aldrei prófa ;)

  2. Lovísa skrifaði 11. júní 2007 klukkan 15:08 :

    Ó já - það er sko hægt að gera vitleysur í þessu. Virkar einmitt afskaplega einfalt en er það síður en svo ;)

  3. Jóna Benný skrifaði 15. júní 2007 klukkan 18:23 :

    Jónan kommentar hérna og prófar að tala um sjálfa sig í 3. persónu með greini… hljómar ekkert sérstaklega vel :p

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image