Súrt síðan í júní, 2007

Sumarfrí

Föstudagur, 22. júní 2007

Ég er komin í sumarfrí - í fyrsta skipti í lífinu þar sem ég er á fullum launum við að slappa af og njóta lífsins :) Djö… ætla ég að hafa það gott :)

Hæ, hó jibbí og allt það

Sunnudagur, 17. júní 2007

Slapp sem betur fer við það að fara niðrí bæ á þessum merka degi. Ákvað að vera í fýlu við hann þar sem hann þurfti að bera uppá helgi, en ekki vinnudegi svo maður gæti náð sér í aukafrídag. Var gríðarlega fegin að losna við börn í sykursjokki með kandífloss og sleikjósnuð, gargandi á eftir helíumblöðrunni sem fór of langt uppí loftið. Þjóðerniskenndin alveg að fara með mig, ég veit ;) Ákvað bara að taka þjóðerniskenndina út yfir leiknum Ísland-Serbía í staðinn. Hólímólí, ég var alveg hoppandi uppúr sófanum á milli þess sem ég gargaði eins og krakki sem tapaði helíumblöðrunni sinni. Fjúff hvað þetta var spennandi. En að sjálfsögðu unnu “strákarnir okkar” þetta ;)

Mikið djöfull væri ég til í að vera jafn þrælskyggn og gaurinn sem er að lýsa golfinu í sjónvarpinu (já, það er jafn óspennandi og það hljómar). “Tiger lítur á skortöfluna og er mjög svekktur, hefði viljað gera betur“. Magnað alveg hvað hann er naskur á líðan spilaranna þarna…

Fimm vinnudagar eftir í sumarfrí - getiggi beeeeeeðið :)

Ormar og pöddur

Mánudagur, 11. júní 2007

Ég er með eins lítið “græna fingur” og hægt er. Þess vegna gladdist ég ekkert sérstaklega þegar kom að lóðardegi hússins nú um helgina. Gríðarleg þátttaka eða hitt þó heldur. Það voru sem sagt heilar þrjár íbúðir sem sáu sér fært að mæta. Algjör viðbjóður að reita arfa og mæta alls konar lífríki þarna undir. Ekki alveg minn tebolli.

 Svo kíktum við aðeins í Bása þar sem hæfileikar mínir komu bersýnilega í ljós. Held það sé næsta mál á dagskrá að fá sér golfkennara í eins og einn klukkutíma eða svo… Er að gera sirka milljón vitleysur í hverju höggi, það væri ágætt að fækka þeim um helming eða svo ;)

Það er svo eitt sem mér finnst alveg óóóskaplega hallærislegt og er búið að þykja hallærislegt í dáldið langan tíma. Skil ekki áráttuna hjá fólki að bæta greini aftan við nöfn og tala um sjálfa/n sig í þriðju persónu. Tökum sem dæmi týpíska bloggfærslu “…Ég var búin að bíða mjög lengi eftir því að Jóinn mætti á svæðið. Siggan þolir ekki svona seinagang svo stelpan fór bara ein út á lífið.” Ég fæ kjánahroll yfir svona málfari.

Næstsíðasta vinnuvikan fyrir sumarfrí er svo hafin :)

Golf

Fimmtudagur, 7. júní 2007

Ég nenniget þessum degi sko alveg :)

Hef sem sagt ákveðið það að hætta að pirra mig útí tölvur og óvirkni þeirra. Það var sem sagt aðallega það sem var að bögga mig þarna síðast ;)

Loksins hætti að rigna, við skötuhjú drifum okkur því út á golfvöll þar sem ég hélt uppteknum hætti og rölti hringinn. Er mikið búin að velta því fyrir mér hvort og þá hvenær ég eigi að skella mér útí þetta sport - held ég gæti sko alveg fengið bakteríuna. Á leiðinni heim stingur Finnur uppá því að fara með mig í Bása og láta mig slá nokkra bolta. Þó ég segi sjálf frá þá stóð ég mig alveg ágætlega… Slasaði allavega engan hihi :)

Þá er bara ekkert aftur snúið - nú verður hann bara að kenna mér golf svo ég geti farið að slá bolta á vellinum í staðinn fyrir að labba alltaf bara með ;)

Tvær vikur í sumarfrí :) Víííííí :)

Æjh…

Þriðjudagur, 5. júní 2007

Dagurinn í dag er svona dagur sem ég nenniget ekki.

Allt sem klúðrast gat hefur klúðrast og í ofanálag hef ég pirrað mig sjúklega á því hvað ég er steingeld þegar kemur að því að lesa ensku. Held mér tækist betur að lesa sama efni á þýsku… magnað!

Ætlaði aldeilis að gera daginn að gleðidegi og fara að gefa blóð, en neinei, þá má ég það víst ekki, þannig að ég ákvað bara að þetta væri ekkert spes dagur!

Djöfull hlakka ég til að vakna á morgun, morgundagurinn verður góður dagur :)