…
Jámm, Skagafjörðurinn var náttúrlega bara snilld. Frábært að fara með samstarfsfólki sem maður þekkir takmarkað og kynnast betur í svona frábærri ferð. Vorum svo heppin að njóta gestrisni foreldra eins sem vinnur með okkur. Þau bara skelltu sér yfir á næsta bæ og eftirlétu okkur húsið alla helgina. Bara eins og maður væri á fjögurra stjörnu hóteli, heitur pottur og allt saman. Við brölluðum að sjálfsögðu mikið í ferðinni, fórum til dæmis á leirdúfuskytterí þar sem yours truly skaut af byssu í fyrsta skiptið og hefði ekki hitt belju þó ég hefði haldið í halann á henni
Síðan kíktum við í fjósið og fjárhúsið og spiluðum Kubb og alls konar fleira skemmtilegt. Ég þarf væntanlega ekki að taka það fram að við opnuðum tvo eða þrjá bjóra, spiluðum á gítar og sungum eitt eða tvö lög og borðuðum rosalega góðan mat
Algjör snilldarferð að mínu mati ![]()
Jámm, svo eru víst sífelldar breytingar í kringum mann. Ég er svo lánsöm að vinna á vinnustað sem gefur manni tækifæri til að þróast í starfi. Fyrir um hálfum mánuði var mér bent á starf sem losnaði innan fyrirtækisins, verandi ekki klárari en ég er, skildi ég ekki einu sinni starfslýsinguna og hvað var verið að óska eftir hjá viðkomandi starfsmanni. Ákvað nú samt að kynna mér þetta, sækja um og var svo heppin að mér var boðið þetta nýja starf. Er sem sagt að fara að vinna í Reikningagerð (og nei, það er ekkert tengt bókhaldi eða innheimtu sem slíku þó einhverjir gætu haldið það). Hlakka mikið til að byrja á mánudaginn og læra nýja hluti
Svitnaði nú samt pínulítið í gær þegar ég skildi ekki einu sinni nöfnin á forritunum sem er verið að setja upp á nýju tölvunni minni, en þetta kemur allt saman með kalda vatninu ![]()
Framundan, afslöppun og grill með Karen og Gumma, já og Innipúkanum að sjálfsögðu ![]()
Góða helgi
Já hljómar eins og helvíti góð fer
að mínu mati á samt alltaf að vera frí á mánudögum eftir svona ferð:þ
en já maður á eftir að sakna þín miki
Jább, hún var nebblilega mjög góð, og svo heppilega vildi til að það var frí á mánudeginum eftir ferðina
Ég á sko eftir að sakna ykkar líka - en ég fer nú ekki langt, kem reglulega í pásur yfir til ykkar
Takk fyrir síðast skvís þetta var æði !
Til hamingju með nýju vinnuna gells
Og vá hva þessi ferð hljómar vel, þú hefur sko greinilega valið vinnuna vel, finnst alltaf eikkað skemmtilegt um að vera í vinnunni hjá þér skvís
Solla - takk sömuleiðis, þetta var sko algjört æði
Anna Rut - takk
Jább, ég valdi skemmtilegasta vinnustaðinn
Takk fyrir frábært kvöld…Þetta var æðipæði