…
Jæja, þá er helgin liðin. Myndi seint segja að þetta hefði verið rólyndis helgi, en skemmtileg var hún ![]()
Á föstudagskvöldið fórum við skötuhjú að sjá Ladda í Borgarleikhúsinu. Alveg hægt að mæla með þessari sýningu og hlæja að henni ![]()
Laugardeginum eyddi ég í að baka vandræði fyrir afmælið mitt og á laugardagskvöldinu var förinni heitið í þrítugsafmæli til Bellu. Spenningurinn var gríðarlegur fyrir partýinu, þar sem afmælisgjöfin frá okkur var algjört leyndó. Við sem sagt “gáfum henni” Jónsa í svörtum fötum. Hann kom og söng fjögur lög og djókaði eitthvað inná milli. Ég held að ég hafi aldrei séð önnur eins viðbrögð eins og þegar Bella sá hann labba inn. En stemningin var gríðarleg fram eftir nóttu.
Sunnudagurinn var svo dagurinn minn - yndislegur frá upphafi til enda. Fullt af fólki sem kíkti í heimsókn og fékk kaffi og meððí. Mér var farið að líða eins og ég ætti stórafmæli, þvílíkt pakkaflóð ![]()
En eitt er víst… ég á stefnumót við Josh Groban minn á þriðjudaginn í næstu viku, gott að eiga góða tengdafjölskyldu
takk fyrir síðast í afmælinu, og til hamingju með daginn á sunnudeginum
oh hvað ég öfunda þig! Ég verð bara heima með DVD tónleikadiskinn…