Súrt síðan í maí, 2007

Fimmtudagur, 31. maí 2007

Jámm, Skagafjörðurinn var náttúrlega bara snilld. Frábært að fara með samstarfsfólki sem maður þekkir takmarkað og kynnast betur í svona frábærri ferð. Vorum svo heppin að njóta gestrisni foreldra eins sem vinnur með okkur. Þau bara skelltu sér yfir á næsta bæ og eftirlétu okkur húsið alla helgina. Bara eins og maður væri á fjögurra stjörnu hóteli, heitur pottur og allt saman. Við brölluðum að sjálfsögðu mikið í ferðinni, fórum til dæmis á leirdúfuskytterí þar sem yours truly skaut af byssu í fyrsta skiptið og hefði ekki hitt belju þó ég hefði haldið í halann á henni ;) Síðan kíktum við í fjósið og fjárhúsið og spiluðum Kubb og alls konar fleira skemmtilegt. Ég þarf væntanlega ekki að taka það fram að við opnuðum tvo eða þrjá bjóra, spiluðum á gítar og sungum eitt eða tvö lög og borðuðum rosalega góðan mat :) Algjör snilldarferð að mínu mati :)

Jámm, svo eru víst sífelldar breytingar í kringum mann. Ég er svo lánsöm að vinna á vinnustað sem gefur manni tækifæri til að þróast í starfi. Fyrir um hálfum mánuði var mér bent á starf sem losnaði innan fyrirtækisins, verandi ekki klárari en ég er, skildi ég ekki einu sinni starfslýsinguna og hvað var verið að óska eftir hjá viðkomandi starfsmanni. Ákvað nú samt að kynna mér þetta, sækja um og var svo heppin að mér var boðið þetta nýja starf. Er sem sagt að fara að vinna í Reikningagerð (og nei, það er ekkert tengt bókhaldi eða innheimtu sem slíku þó einhverjir gætu haldið það). Hlakka mikið til að byrja á mánudaginn og læra nýja hluti :) Svitnaði nú samt pínulítið í gær þegar ég skildi ekki einu sinni nöfnin á forritunum sem er verið að setja upp á nýju tölvunni minni, en þetta kemur allt saman með kalda vatninu :)

Framundan, afslöppun og grill með Karen og Gumma, já og Innipúkanum að sjálfsögðu ;)

Góða helgi :)

Þriðjudagur, 22. maí 2007

Jájá, það er alveg runnið af mér síðan á miðvikudaginn. Þvílíkt stuð og þvílíkt góður matur. Klikkar ekki að djamma með vinnunni :)

Sem er einmitt líka næst á dagskrá. Deildin hans Finns er að fara í óvissuferð, og ég er svo agalega heppin að mökum er boðið með. Það eina sem er vitað er, að við erum að fara í Skagafjörðinn og það verður endalaus gleði og gríðarlegt fjör :) Ég er ekkert smá heppin að vinna á svona skemmtilegum vinnustað :)

Mmmm

Miðvikudagur, 16. maí 2007

Einstaklega girnilegum Tapasréttum verður skolað niður með dýrindis hvítvíni og stórkostlegum félagsskap í kvöld :) Ég vinn nebblilega með svo skemmtilegum skvísum og það er vorgleði hjá okkur í kvöld :)

VÁH!

Miðvikudagur, 16. maí 2007

Tónleikarnir voru Æ Ð I :) Djöfull er maðurinn geggjaður söngvari! :) Mig langar aftur…

You raise me up ;)

Þriðjudagur, 15. maí 2007

Svei mér þá ef ég á ekki bara stefnumót við hann Groban í kvöld :) Það verður ekki leiðinlegt!

Júrójúró…

Fimmtudagur, 10. maí 2007

Hverjar eru líkurnar á að Ísland komist áfram í keppnina á laugardaginn?

Ég ætla allavega að vera svartsýn og segja að við komumst ekki áfram í kvöld…

Aftur!

Þriðjudagur, 8. maí 2007

Hvað hef ég gert til að verðskulda flensu í annað skiptið á tveimur mánuðum? Ætli þetta sé aldurinn?

Mánudagur, 7. maí 2007

Jæja, þá er helgin liðin. Myndi seint segja að þetta hefði verið rólyndis helgi, en skemmtileg var hún :)

Á föstudagskvöldið fórum við skötuhjú að sjá Ladda í Borgarleikhúsinu. Alveg hægt að mæla með þessari sýningu og hlæja að henni ;)

Laugardeginum eyddi ég í að baka vandræði fyrir afmælið mitt og á laugardagskvöldinu var förinni heitið í þrítugsafmæli til Bellu. Spenningurinn var gríðarlegur fyrir partýinu, þar sem afmælisgjöfin frá okkur var algjört leyndó. Við sem sagt “gáfum henni” Jónsa í svörtum fötum. Hann kom og söng fjögur lög og djókaði eitthvað inná milli. Ég held að ég hafi aldrei séð önnur eins viðbrögð eins og þegar Bella sá hann labba inn. En stemningin var gríðarleg fram eftir nóttu.

Sunnudagurinn var svo dagurinn minn - yndislegur frá upphafi til enda. Fullt af fólki sem kíkti í heimsókn og fékk kaffi og meððí. Mér var farið að líða eins og ég ætti stórafmæli, þvílíkt pakkaflóð :)

En eitt er víst… ég á stefnumót við  Josh Groban minn á þriðjudaginn í næstu viku, gott að eiga góða tengdafjölskyldu ;)

Ammæli

Sunnudagur, 6. maí 2007

Það kom þá að því að maður yrði nær 30 árunum heldur en 20. Tuttugu og sex og ekki eitt einasta grátt hár ;)

Það er kominn maí…

Fimmtudagur, 3. maí 2007

Hvert í alvörunni fór apríl? Alveg hraðferð á þeim mánuði.

Það er óhætt að segja að maí sé freeeekar pakkaður mánuður, sérstaklega helgarnar. Við erum að tala um fjögur afmæli, Júróvisjónpartý, Leikhús, Óvissuferð og Deildardjamm svo eitthvað sé nefnt.

Þess vegna hef ég eeeengan tíma til að vera með massívustu hálsbólgu í heimi og einhverja hitavellu - ég þarf að fara í leikhús, þrítugsafmæli og halda mitt eigið afmæli um helgina.

Svo finnst mér þið lélegir kommentarar ;)