Ferðasagan :)

Það að vera vaknaður klukkan þrjú að nóttu til er ekki uppáhaldið mitt. En þegar ferðinni var heitið til Köben var mér aaalveg sama. Við vorum sem sagt komin uppá völl klukkan hálffimm, tékkuðum okkur inn og héngum síðan í fríhöfninni þar til við fórum í loftið.

Í grófum dráttum var ferðin svona:

-Bjór

-H & M

-Labb

-Bjór

-Bjór

-Árshátíð

Árshátíðin var aaalgjör snilld. Við vorum sótt á báti á hótelið og sigldum í hálftíma þar til við komum á skemmtistaðinn Halvandet. Þar tók á móti okkur geeeeggjaður fordrykkur. Staðurinn var mjög hrár en andstæðurnar gerðu hann rosa flottan. Starfsmannafélagið og fleiri skemmtikraftar voru búin að gera Skaup sem var sýnt við gríðarlegan fögnuð. Maturinn var mjög góður og að sjálfsögðu var opinn bar - svona eins og hjá alvöru fyrirtækjum. Bátarnir komu svo og sóttu okkur og sigldu með okkur til Nyhavn þaðan sem við röltum svo á einhvern agalega hot klúbb sem heitir Emma. Annað hvort var ég dottin úr öllum djammgír eða þá að staðurinn var ekki alveg að gera sig, allavega dóum við Finnur úr skynsemi og vorum farin að sofa klukkan þrjú.

Ég var óendanlega fegin morguninn eftir að fröken þynnka bankaði ekki uppá hjá mér. Flestir sem voru að tékka sig út í lobbýinu voru hálfglærir ;) Eftir um eins og hálfs tíma labb vorum við komin á Laundromat kaffihúsið og hittum þar Elínu Björk, Ása og Hildi (sem var maki okkar Finns alla helgina), borðuðum góðan mat og spjölluðum. Síðan tókum við því bara rólega þar til rútan fór uppá völl aftur. Það voru ansi þreyttir ferðalangar sem skriðu uppí rúm þegar klukkan var langt gengin í þrjú á mánudagsnótt.

Ferðin fær sex bjóra af sex mögulegum! Ég vinn hjá skemmtilegasta fyrirtækinu með skemmtilegasta fólkinu :)

Báturinn sem sótti okkur og fór með okkur á árshátíðina

Hildur var brjálæðislega hress

Fallega fólkið ;)

Klassi…

Lýsandi fyrir stemningu ferðarinnar :)

Fleiri myndir á myndasíðunni minni hér til hægri.

2 færslur hjá “Ferðasagan :)”

  1. Heiðdís skrifaði 26. apríl 2007 klukkan 18:09 :

    skemmtilegar myndir!!

  2. Svana skrifaði 27. apríl 2007 klukkan 22:58 :

    æð :D

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image