Næs helgi :)

Í síðustu viku fékk ég tölvupóst og í subjectinu stóð “skráning móttekin”. Ég var svo sem ekki alveg að kveikja en las síðan að ég hafi verið skráð til þátttöku í SVO-factor, sem er söngkeppni starfsmannafélags Vodafone. Ég á sumsé frekar fyndna samstarfsfélaga. Ég reyndi að fá þessa skráningu ógilda en það heppnaðist ekki alveg. Þannig að á föstudagskvöldið var mér rúllað uppá svið á Ölver og mér réttur míkrafónn og þar gaulaði ég eins og eitt stykki lag. Tveimur tímum síðar stóð ég svo aftur á sama sviðinu með glænýjan síma í höndinni að syngja sama lagið… Minns vann nebblilega ;) Alveg sátt við það, en finnst það samt freeekar fyndið :)

Í gærkvöldi bauð ég síðan uppáhaldsuppáhaldinu mínu á deit. Förinni var heitið í Iðnó að sjá leikritið Pabbinn. Það er sjálfstætt framhald af Hellisbúanum og ég get svo svarið það að það er sjúúúklega fyndið. Allavega var ég farin að grenja úr hlátri og leikarinn var svo sleginn út af laginu vegna hláturskastanna í áhorfendum að hann gleymdi einu sinni hvar hann var staddur í leikritinu þar sem hann hló svo mikið sjálfur. Algjörlega þess virði að eyða einu laugardagskvöldi þarna, mæli hiklaust með því :)

Framundan er svo þriggja daga vinnuvika og laaaaangt helgarfrí, ljúfa lífið :)

6 færslur hjá “Næs helgi :)”

  1. Jóna skrifaði 2. apríl 2007 klukkan 07:21 :

    JEI til hamingju uppáhaldssöngfuglinn minn (ég hélt alltaf að ég væri uppáhaldið þitt… kannski er ég bara ekki uppáhaldsuppáhaldið? ;) )

    Mig langar í leikhús…

    Ert þú að reyna að segja okkur eitthvað með því að draga kallinn á leikrit sem heitir “Pabbinn” ;) hehe

    Ekkert skemmtilegra en útúrsnúnar óléttuspurningar í hvert skipti sem færi gefst…eða ekki :P

    Kveðja frá Akureyros (bænum sem þú ert að fara að heimsækja bráðlega)

  2. Lovísa skrifaði 2. apríl 2007 klukkan 10:20 :

    Takk Jóna mín :) Þú ert alveg í uppáhaldi sko, bara ekki alveg uppáhaldsuppáhaldi ;) Og nei, ég er einmitt ekki að segja neinum neitt með því að fara á þetta leikrit, nema bara það að þetta er fáránlega skemmtilegt leikrit :)

  3. Svana skrifaði 3. apríl 2007 klukkan 12:23 :

    Geggjað Lovísa til hamingju með sigurinn. hlakka til að sjá ykkur á föstudaginn úúúúúú

  4. Heiðdís skrifaði 3. apríl 2007 klukkan 16:46 :

    úúúhipphipphúrrey!!!

    Til hamingju með ósköpin!!! haha hlakka til að sjá þig um páskana!!

  5. Hildur skrifaði 3. apríl 2007 klukkan 18:51 :

    OOOOO MAN hvað ég hlakka til að sjá ykkur veivei
    kisskiss frá köben…

  6. Karen skrifaði 7. apríl 2007 klukkan 18:34 :

    Til hamingju ezkan…þú manst að þú varst búin að lofa að syngja í brúðkaupinu mínu ;)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image