X-Whatever
Sunnudagur, 29. apríl 2007Það styttist í kosningar - það er nokkuð ljóst. Um miðjan dag í dag dinglaði hér einhver kona og gaf okkur rós frá Samfylkingunni. Hálftíma seinna dó rósin í vatninu hjá mér. Ég veit ekki hvort þetta segir eitthvað til um hvernig Samfylkingunni mun vegna í þessari baráttu. En pointið með þessu fattaði ég ekki alveg.
Verandi afskaplega (understatement) ópólitískt fólk, stakk Finnur uppá því um daginn að við söfnuðum saman öllum kosningaáróðri sem bærist í pósti og skráðum niður símtöl og böggandi veiðimenn á ýmsum götuhornum, og kysum síðan þann flokk sem áreitti okkur minnst. Mér fannst það góð hugmynd… Óþolandi bögg alltaf þegar fer að nálgast kosningar!
Annars var ég myndarleg húsmóðir þessa helgina og skellti í pönnsur í dag - búin að eiga forláta pönnsupönnu í mörg ár og aldrei notað hana fyrr en nú. Afraksturinn var nokkuð góður bara ![]()
Minnið mig síðan á að ég ætla einhvern tíma að gefa út bók um hávaðasama nágranna… Ég hef víst ágætis reynslu af slíku. Ég meina hver nýtur þess ekki að vakna um níuleytið á sunnudagsmorgnum við undurfagurt gítarspil og enn fegurri söng nágrannans, sem hefur svo mikla tröllatrú á sjálfum sér að hann þagnar ekki tímunum saman? Love it…


