Góður dagur…
Þegar ég var í þann mund að smella peysunni yfir hausinn á mér í morgun, fann ég hvernig eitthvað pikkfestist í vinstra herðarblaðinu mínu og fór bæði alla leið uppí haus og langleiðina niðrí mjöðm. Þetta er alveg hreint ótrúlega þægilegt og ég er ekkert skökk og asnaleg í vinnunni. Á einmitt líka frekar erfitt með að nota vinstri höndina án þess að veina og gretta mig heil ósköp. Heppin? Ó já…
Um þessar mundir er svo víst komið að því að skila skattaskýrslunni. Ýmislegt hefur breyst síðan ég skilaði síðustu skattaskýrslu, og ætlaði ég að nýta mér þjónustu skattmann og hringja þangað til að fá upplýsingar. Að sjálfsögðu var ég strax sett á bið og fékk að heyra ofurljúfa tóna fallegrar lyftutónlistar, á milli þess sem karlmaður tilkynnti mér á þrjátíu sekúndna fresti”afsakaðu biðina, vinsamlegast bíðið”. Eftir tíu mínútur af þessu fram og til baka, heyrðist sami karlmaður tilkynna mér það að “allar línur væru því miður uppteknar, vinsamlegast reynið síðar” og síðan skellti hann bara á mig. Ég er ofsalega glöð með þessa þjónustu og er að hugsa um að velja Skattmann, þjónustufyrirtæki ársins.
—-Kalhæðni lýkur—-
Átti annars alveg frábært kvöld með Elínu Björk í gær þar sem við leystum vandamál heimsins yfir latte og öðrum heitum drykkjum á Kaffi París. Greinilega orðið aðeins of langt síðan ég kom inn fyrir póstnúmerið 101, ég vissi t.d. ekki af öllum þessum framkvæmdum þarna
Svona úthverfapakk… iss ;)
ógó flottir Skartgripir
http://blog.central.is/guggamalla
Google is the best search engine Google