Ja hérna…

 

Þetta blað barst inn á “öll” heimili með Fréttablaðinu í gær. Hressileg fermingarstelpa framan á því að beygja sig niður eftir bangsanum sínum. Eða er það ekki?

Skv. þessari grein á visir.is er um argasta klám að ræða og einhver femínistatrunta komin í málið og klagar Smáralind. Ég bara spyr… Er ekki eitthvað að fólki sem sér klám út úr þessu? Ég sæi kannski vísun í eitthvað slíkt ef stúlkan væri berleggjuð og í svo flegnum bol að brjóstin á henni dyttu upp úr. En þessi áðurnefnda trunta segir hins vegar að stúlkan sé í háum hælum og í stellingu sem er vel-þekkt úr klámmyndum. Hvað ætli þessi sama kona geri þegar dóttir hennar er á leið í matarboð, komin í háu hælana sína og missir óvart veskið sitt á gólfið? Kærir hún hana fyrir klám?

5 færslur hjá “Ja hérna…”

  1. Jóna skrifaði 10. mars 2007 klukkan 00:17 :

    Hehe já einmitt… þetta er sjúkt. Það er búið að taka þetta út af síðunni hennar núna… og það er bara eins og þetta hafi aldrei gerst :Þ

  2. karen skrifaði 13. mars 2007 klukkan 13:27 :

    Don´t get me started á þessari blessuðu rauðsokku…Hvaðan kemur hún eiginlega…hefur hún EKKERT að gera!!! skil þetta bara engann veginn…

  3. Lovísa skrifaði 13. mars 2007 klukkan 13:48 :

    Jóna: Já ég sá það að það var búið að fjarlægja þetta af bloggsíðunni

    Karen: Nei, ég held hún hljóti að hafa of mikinn frítíma (til að horfa á klámmyndir þá eða? hehehe)

  4. Jón Eggert skrifaði 14. mars 2007 klukkan 03:35 :

    Sælar, ég sá að þig langaði á Josh Groban. Ég veit líka um tvo munaðarlausa Cliff Richard miða … í stúku … ef þig langar að feðra þá. Hmmmm … í framhaldi af femínistaumræðu … mæðra þá? (er það orðskrípi til?).

  5. Lovísa skrifaði 14. mars 2007 klukkan 09:18 :

    Hæ Nonni :) Nei takk, ég er svona minna hrifin af Cliff Richard… og mæðra þá..jújú, það er örugglega til ;)

Láttu þitt eftir liggja!

Reitir merktir * verða að vera fylltir út

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-Spam Image